Kunnur stjórnmálamaður skrifaði á fésbókarsíðu sína (31.12.2013): … ef okkur ber gæfa til að skipta gæðum okkar ágæta lands sem jafnast. Hann hefði betur sagt: … ef við berum gæfu til að skipta gæðum okkar ágæta lands sem jafnast. Ótrúlega algengt er að sjá rangt farið með þetta orðtak að bera gæfu til …. …
Forkostulegt viðtal við Jón Gnarr
Stöð tvö birti forkostulegt viðtal við Jón Gnarr borgarstjóra á fimmtudagskvöld. Sjá http://www.visir.is/section/MEDIA99&fileid=VTVA343262A-1E0A-42CF-81E7-09EEE7B826DD. Þetta var eiginlega mesta delluviðtal sem ég hef lengi séð og heyrt. Jón Gnarr segist ætla að gera Reykjavík að herlausri borg! Til þess að hann geti gert það verður hann fyrst að setja niður her í Reykjavík. Hér er engin …
Molar um málfar og miðla 1376
Gleðilegt nýtt ár og þakka samstarf á liðnu ári, ágætu Molalesendur. Molaskrifari er varla dómbær á Áramótaskaupið á Gamlárskvöld vegna þess að hann sá það ekki í heild. Gaman var hinsvegar að sjá hvernig skoðanir fólks í netmiðlum skiptust mjög í tvö horn. Annars vegar var Skaupinu hrósað í hástert en aðrir fundu því …
Molar um málfar og miðla 1374
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (29.12.2013) var sagt að íþróttamaður ársins hefði verið valinn á hófi íþróttafréttamanna (endurtekið í kvöldfréttum). Þarna hefði Molaskrifari notað aðra forsetningu og sagt að íþróttamaður ársins hefði verið kjörinn í hófi íþróttafréttamanna. Molavin skrifaði (30.12.2013): ,,Við hlið hvers fréttabarns situr að jafnaði fyrirtaks blaðamannsefni, sem kann vel með málið að fara. …
Molar um málfar og miðla 1373
Áhafnarmeðlimir koma mjög við sögu í þessari frétt af mbl.is (27.12.2013). http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/12/27/bjorgunarskipid_situr_sjalft_fast/ Hið ágæta orð skipverji virðist gleymt og grafið. Á mbl.is þennan sama dag var fyrirsögn: Vegirnir opna hugsanlega á morgun. Ekki kom fram hvað vegirnir mundu opna. Undarleg meinloka sem erfitt virðist að uppræta. Vegirnir verða hugsanlega opnaðir á morgun, hefði til dæmis …
Molar um málfar og miðla 1372
Molavin skrifaði (26.12.2013):,, Það hefur verið sagt frá því í fréttum, meðal annars hjá Ríkisútvarpi og sjónvarpi, að æðsti ráðamaður Norður-Kóreu hafi látið taka Jang Sung-taek, frænda sinn af lífi. Sá var kvæntur Kim Kyong-hui, en hún var systir Kim Jong-Il, fyrrum leiðtoga Norður-Kóreu, og því mágur hans. Það tíðkast í ensku að nota orðið uncle, um …
Molar um málfar og miðla 1371
Enn skal hrósað hinum ágæta þætti Ríkissjónvarpsins Orðbragði. Svona er hægt að gera vel, ef gott fólk og góður vilji er til staðar. Okkur var sagt í upphafi síðasta þáttar (22.12.2013) að þátturinn væri sýndur í samstarfi við Bestu molarnir frá Freyju. Það hefði átt að vera: …í samstarfi við Bestu molana frá Freyju. …
Molar um málfar og miðla 1370
Jón Gnarr vígir listaverk, stóð í Morgunblaðinu (20.12.2013) Jón Gnarr borgarstjóri er ekki vígður maður. Hann vígir því hvorki eitt né neitt. Það hefur hinsvegar færst í vöxt seinni árin að tala um að vígja mannvirki þegar þau eru tekin í notkun. Varla er hægt að segja að listaverk sé tekið í notkun. Þetta er …
Molar um málfar og miðla 1369
Molavin skrifaði ( 21.12.2013): ,,88 slasaðir eftir að leikhúsþak hrundi“ sagði í fyrirsögn Morgunblaðsins 20.12.2013. Í sjálfu sér ekki alrangt, en það er orðið hvimleiður og ríkjandi ósiður í fréttaskrifum að segja að fólk slasist EFTIR slys. Það er slys þegar fólk slasast. Málvenja hefði verið að segja að 88 hafi slasast ÞEGAR þak hrundi. “ …