«

»

Molar um málfar og miðla 414

Í hádegisfréttum  Ríkisútvarpsins  (24.09.2010) var  sagt  frá lokum hvalvertíðar.  Sagt var  um langreyði, sem  komið var með að landi í Hvalfirði:  Lokið er við að flensa hann.    Hvalaheitið langreyður er  kvenkynsorð. Þessvegna  hefði  átt að segja, að lokið  væri við að  flensa hana. Þetta hefur víst verið nefnt hér áður.

   Fréttastofa  Ríkisútvarpsins er  svo föst í fortíðinni, að þar eru engar  fréttir klukkan 12  á hádegi  á sunnudögum. Þeir sem  þá  vilja  hlusta á fréttir  verða  að   stilla á  Bylgjuna. Ótrúlegt.

  Í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins (25.09.2010) var sagt: Málflutningur í nokkrum prófmálum vegna málsins hefjast í  héraðsdómi 15. október.  Hvernig sleppa  svona  villur  alla leið inn í stofu til okkar ?

Í mbl.is (24.09.2010) er bæði  í frétt  og í fyrirsögn talað um   brimrótarfyrirbæri , sjaldséð brimrótarfyrirbæri.  Eignarfall orðsins  brimrót er  brimróts.    þegar talað um  rót  í grasafræði , —  er  eignarfallið  rótar.

Meira  úr  mbl.is (25.09.2010): Hjúkrunarkona í bandaríska hernum sem var rekin fyrir að vera samkynhneigð er frjálst að snúa aftur í herinn. Hjúkrunarkonu er frjálst. Ekki hjúkrunarkona  er frjálst. Segja mætti einnig, að  hjúkrunarkonan sé frjáls að því að ganga aftur í herinn

 Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins var fjallað um starfsemi Rauða kross Íslands og um símtöl um beiðnir um aðstoð: Þau hafa  fjölgað á þessu ári. Rétt væru að segja, að þeim, símtölunum , hefði  fjölgað. Síðan sagði fréttamaður að dregið  hefði úr hjálparbeiðni.Hér  hefði átt að nota fleiritölu og tala um að dregið  hefði úr hjálparbeiðnum.

 Það var fleira sem var  ekki eins og það átti að vera í þessum hádegisfréttatíma  frá Estaleitinu. Þar var sagt   frá  fyrirhugaðri  málshöfðun  félaga úr Abba-hópnum  vegna notkunar á einu af lögum þeirra. Sagt var: …. eru vanir því að lög þeirra séu notuð í ýmis tilefni.  Hefði betur verið  sagt ,við ýmis tilefni  eða  af ýmsu tilefni.

    Lög um landsdóm og ráðherraábyrgð stenst, …  sagði fréttaþulur Ríkisútvarpsins (24.09.09.2010). Lög er fleirtöluorð. Lög standast, hefði því átt að segja.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>