Molaskrifari hélt, að sér hefði misheyrst, þegar fréttamaður Ríkissjónvarps (04.10.2010) spurði forsætisráðherra hvort hún vildi ekki stíga fram á svalir Alþingishússins og ávarpa mannfjöldann á Austurvelli? Fréttamaður hefði alveg eins getað sagt: Má ekki bjóða þér út á svalirnar svo þú geti fengið golfkúlur og grjót í hausinn, – svona í tilefni dagsins ? Þetta var út úr kú. Eins og venjulega eyðilögðu smáhópar skrílmenna mótmæli friðsamra borgara og ollu milljóna tjóni, sem skattgreiðendur borga. Lögreglan á heiður skilinn svo og allir þeir sem fóru með friði um Austurvöll.
Ófriðsamt haust, sagði prófessor í stjórnmálafræði, réttilega. Fréttamaður Ríkissjónvarps talaði hinsvegar um ófriðarsamt haust, sem Molaskrifara finnst lakara.
Tveir fréttamenn Ríkissjónvarpsins töluðu um að fleiri þúsund manns hefðu mótmælt á Austurvelli (04.10.2010). Fleiri en hvað? Þeir áttu við að mörg þúsund manns, eða þúsundir manna hefðu mótmælt á Austurvelli í kvöld. Þetta hefur svo sem verið nefnt hér áður. Það er gamall ósiður að tala um fleiri þúsund þegar átt er við mörg þúsund.
Ruglið í Útvarpi Sögu á sér engin takmörk. Þar er aftur og aftur talað um að forseti Íslands eigi að rjúfa þing og boða til kosninga. Þingrofsvaldið er ekki í höndum forseta, – sem betur fer. Líklega hefði núverandi forseti ekkert á móti því að hafa þann rétt. Í lýðveldi hefur forsetinn ekki þennan rétt, — sem betur fer.
Molaskrifari stenst ekki mátið að birta þennan snilldartexta úr dv.is (04.10.2010): Jórunn er varaþingkona Atla Gíslasonar og var viðstödd þingsetninguna. Hún er einnig ólétt. Það var og !
Of margar af þeim ræðum,sem Molaskrifari hlýddi á frá Alþingi í kvöld (04.10.2010) voru innihaldslaust lýðskrum og upphrópanir. Því miður.

Skildu eftir svar