Úr mbl.is ( 28.01.2011): Innanríkisráðherra Egyptalands varar við að „markvissum aðgerðum“ verði beitt á mótmælum, sem fyrirhuguð eru eftir föstudagsbænir í dag. Að beita aðgerðum á mótmælum er ekki gott orðalag. betra væri gegn mótmælum, eða gegn mótmælendum sem hefðu sig í frammi….
Ríkissjónvarpið bauð okkur viðskiptavinum sínum að horfa á tvær kvikmyndir í gærkveldi (28.01.2011). Í prentaðri dagskrá segir svo um efni hinnar fyrri: Farandsölukona reynir að hrista af sér mótelstjóra sem fellur fyrir henni og lætur hana ekki í friði. Um efni hinnar seinni, segir svo: Þegar Brúðurin (svo!) vaknar af löngu dái er barnið sem hún bar undir belti horfið og hún hyggur á hefndir. Er þetta ekki stórkostlegt ? Ætli Stöð tvö sé ekki löngu búin að sýna bæði þessi snilldarverk kvikmyndalistarinnar?
Molaskrifari byrjaði að hlusta á Rás tvö snemma á föstudagsmorgni (28.01.2011), en slökkti þegar tilkynnt var að vestur í Hollywood sæti Sísí, Bíbí, eða Dídí við sjónvarpið og drykki í sig slúðrið af fræga fólkinu eins og það orðað. Nokkrum sinnum hefur hér verið vikið að þessu leikaraslúðri ,sem flutt er á hrognamáli,sem ekki er birtingarhæft í neinum fjölmiðli. Málfar sumra umsjónarmanna á Rás tvö getur heldur ekki talist til fyrirmyndar. Er það hlutverk Ríkisútvarpsins að úða svona rugli yfir landsmenn? Held ekki.
Aldrei þessu vant leit Molaskrifari við (28.01.2011) á vefnum,sem Hannes Hólmsteinn Gissurarson er sagður skrifa og kallar AMX. Þar hnaut hann um eftirfarandi: Vandi þingflokksins er ekki síst sá að Bjarni Benediktsson, formaður flokksins, hefur farið með ströndum og ekki tekið af skarið varðandi hinn „nýja“samning um Icesave… Málvenja er að tala um að fara með löndum , þegar menn fara varlega, kveða ekki upp úr um eitt né neitt, segja fátt.
Skildu eftir svar