«

»

Molar um málfar og miðla 523

  Rás eitt er eina  réttlætingin fyrir  tilvist Ríkisútvarpsins, eftir að  Ríkissjónvarpinu var breytt í vídéóleigu og íþróttarás. Á Rás eitt er margt prýðilegt   að finna bæði í tónum og töluðu máli. Fjölmargir vandaðir þættir eru þar á boðstólum.   Að morgni laugardags  (05.02.2011) hlustaði Molaskrifari á   tímabæran og fróðlegan , endurtekinn, Víðsjárþátt um Egyptaland.  Ódulbúið Bandaríkjahatur gamals  hernámsandstæðings, spillti þættinum  dálítið, – en í heild var þetta vandað og vel unnið efni.

  Í Sunnudagsmogga  og á mbl.is (05.02.2011)  sáu lesendur að útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins er ekkert  um samkeppnina frá  365 gefið. Velþóknun Morgunblaðsins leyndi sér ekki.

  Það var eitthvað ómennskt  og  ógeðfellt við  þýska tröllið,sem hampað var í  fréttatímum beggja   sjónvarpsstöðvanna (05.02.2011). Óskiljanlegt að vera að hampa þessum viðbjóði. Þessi  afskræming mannslíkamans gerði manni eiginlega óglatt.

  Íþróttir ollu því líklega, að fréttum Ríkissjónvarps seinkaði á laugardagskvöld (05.02.2011). Þar með  fór öll kvölddagskráin aðeins úr  skorðum. Seinkunin var    reyndar tilkynnt á skjánum en  enginn vandi hefði verið að koma í veg fyrir þetta.  Klipppa  hefði mátt aðeins  aftan af gjafafárinu í endursýndu Útsvari. Aðrar sjónvarpsstöðvar  kosta kapps um að  standa við auglýsta  dagskrá. Ríkissjónvarpið okkar á  enn margt ólært eftir  næstum   45  ár !

  Lögregluforinginn Barnaby í danska sjónvarpinu DR1 bjargaði   laugardagskvöldinu. Ekki í fyrsta skipti.  En svo koma meira  sjónvarp. Frá því segir til gamans í öðrum pistli.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>