Dómgreindarleysi hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins að taka alvarlega marklaust blaður Samfylkingarþingmanns í Silfri Egils um að hann sé reiðubúinn að mynda nýja ríkisstjórn! Þetta þótti fréttnæmt í sexfréttum (06.02.2011). Einstakir þingmenn hafa ekkert umboð til stjórnarmyndunar, ekki einu sinni í Silfri Egils.
Góður Landi í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöld (06.02.2011). Prýðilegur var þáttur þeirra Ara Trausta Guðmundssonar og Valdimars Leifssonar, – Nýsköpun – Íslensk vísindi í Ríkissjónvarpinu (07.02.2011). Ari Trausti þarf þó að gæta sín á því að spyrja ekki tveggja spurninga í senn.
Eignarfall eintölu með greini af orðinu beiðni er beiðninnar , ekki beiðnarinnar eins og sagt var í sjöfréttum Ríkissjónvarps (07.02.2011). Þá er líka málvenja að tala um að bera sigur úr býtum eða hafa sigur. Ekki að hafa sigur úr býtum eins og sagt var í sama fréttatíma. Enn skal vitnað í sama fréttatíma Ríkissjónvarpsins. Verið var að segja frá skógareldum, eða kjarreldum í Ástralíu ( Það á ekki af Áströlum að ganga,- flóð, fellibylur og skógareldar). …. þó ekki hafi verið jafn vindasamt í dag og var í gær, sagði fréttaþulur. Þarna hefði farið betur á að segja: … þó ekki hafi verið jafn hvasst í dag og var í gær. Orðin vindasamt og hvasst þýða ekki alveg það sama, í huga Molaskrifara. Það er vindasamt á Stórhöfða og þar var mjög hvasst í dag.
Skrifað er á fréttavefinn Vísi (07.02.2011): Þá voru tveir ofurölvaðir karlmenn handteknir utan við Skóbúð Selfoss… Nú er líklega ekki hægt að segja að þetta sé rangt til orða tekið. Málvenja er hinsvegar að segja að menn, sem hafa drukkið of mikið, séu ofurölvi, ekki ofurölvaðir.
Í sexfréttum Ríkisútvarpsins (07.02.2011) var frá því greint, að örtröð væri í Bláfjöllum og langar biðraðir og því beint til fólks, sem væri á leið þangað að snúa við. Þessi frétt hefur áreiðanlega orðið einhverjum hvatning til að drífa sig upp í Bláfjöll. Þannig erum við Íslendingar.
Skildu eftir svar