Fréttir Ríkissjónvarpsins af afgreiðslu Icesave á Alþingi (16.02.2011) voru bullandi hlutdrægar. Þegar þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu , sáu áhorfendur og heyrðu einn þingmann sem greiddi ekki atkvæði en tvo sem voru á móti. Eðlilegt hefði verið að sýna þingmenn í sömu hlutföllum og atkvæði féllu. Meira en tveir þriðju þingheims greiddu atkvæði með samþykkt Icesave. Þetta var hlutdrægt og óskiljanlegt val. Þá var margendurtekið í fréttum að tillögur um þjóðaratkvæðagreiðslu hefðu verið felldar „naumlega“. Enn var tuðað á þessu í morgunútvarpi Rásar tvö(17.02.2011), þar sem skoðanir umsjónarmanns fóru ekki dult. Morgunútvarp Rásar tvö er veikasti hlekkurinn í dagskrárgerð Ríkisútvarpsins.
Orðið naumlega er gildishlaðið. Hvað er naumlega? Tillögurnar voru felldar með þriggja atkvæða mun. Það hefði verið eðlilegast að segja það í stað þess að leggja mat á hvort þetta var naumt eða ekki. Tillögurnar voru felldar. Það er það eina sem skiptir máli. Það skilja yfirmenn fréttastofunnar ekki. Enn eini sinni kolféll fréttastofa Ríkisútvarpsins á prófinu um fagleg vinnubrögð. Fréttastofa Stöðvar tvö gerði málinu miklu betri skil.
Úr mbl.is (15.02.2011) : Stjórnendur í breska hernum og breska varnarmálaráðuneytið hefur beðist afsökunar á að 38 hermenn hafi fengið uppsagnarbréf í tölvupósti. Það er ótrúlega algengt að sjá svona villur. Hér ætti að standa: Stjórnendur í breska hernum og breska varnarmálaráðuneytið hafa beðist afsökunar …. Það eru stjórnendurnir og ráðuneytið sem hafa beðist afsökunar.
Allt í einu lá himinn og haf við, sagði þingmaður úr ræðustóli Alþingis(15.02.2011). Ja, hérna. Hann átti við að mikið hefði legið við. Það eru fleiri en fjölmiðlamenn sem kunna ekki að nota íslensk orðtök. Þetta minnir eiginlega á þjófinn, sem kom úr heiðskíru lofti hér fyrir mörgum áratugum.
Sigurður Helgason spyr: „Það er einn hlutur sem ég tel ástæðu til að minnast á. Það er hversu algengt er að framkvæma allt mögulegt og ómögulegt. Er ekki nóg að segja að kanna fylgi stjórnmálaflokka í staðinn fyrir að framkvæma könnun. Hvað segja menn um þetta?“
Já, hvað segja Molalesendur? Molaskrifara finnst líka nóg um framkvæmdasemi í fjölmiðlum.
Sjónvarpsauglýsing Sjóvár um „feitan tékka“ felur í sér þjóðernisfordóma. Merkilegt að enginn skuli hafa mótmælt. Hún jaðrar við einskonar rasisma. Hvað hafa Tékkar gert Sjóvá ? Ekki stálu þeir bótasjóðnum. Þar voru Íslendingar að verki og þurftu enga hjálp frá öðrum.
Skildu eftir svar