Fínt orð fréttaskýring. Óþarfi að tala um fréttaútskýringu eins og gert var í morgunútvarpi Rásar tvö (21.02.2011)
Undarlegt fréttamat Ríkissjónvarpsins (20.02.2011) að tala við tvo mótmælendur við Bessastaði, sem höfðu ekkert fram að færa. Í beinu útsendingunni frá Bessastöðum sagði fréttamaður Ríkissjónvarpsins að 40 þúsund undirskriftir og 56 þúsund undirskriftir væru mjög svipaðar tölur. Meira að segja máladeildarstúdent veit að 40 og 56 eru ekki svipaðar tölur. Góð frammistaða Boga Ágústssonar í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins á sunnudag.
Þótt Molaskrifari sæi ekki nema lítið eitt af dagskrá sunnudagskvöldsins í Ríkissjónvarpinu, fer ekki milli mála, að ár og dagur er síðan sjónvarpið hefur boðið okkur jafn góða dagskrá, – og meira að segja sígilda, fína bíómynd með úrvalsleikurum. Guð láti gott á vita, eins og þar stendur.
Molaskrifari hefur alltaf svolítið gaman af því, þegar ábendingar hans eru teknar upp í Daglegu máli í morgunútvarpi Rásar eitt. Eins og þegar rætt var um hörmungina, sem í auglýsingu var kölluð anti wrinkle augn roller (21.02.2011) og skiptir þá engu hvar fyrst var vakin athygli á málinu. Í þessum sama þætti var talað um árangurslaust lögtak. Molaskrifari er ekki lögfróður, en minnist þess ekki að hafa heyrt talað um árangurslaust lögtak. Oft er hinsvegar talað um árangurslaust fjárnám, þegar eignir eru ekki til staðar til greiðslu skuldar. Hvað segja lögfróðir um þetta?
Úr dv.is (20.02.2011) 1200 milljón króna lán Landsbankans til Fjárfestingarfélagsins Ness sem er í eigu Jóhannesar Ólafssonar svipar mjög til annarra lána sem veitt voru á síðustu mánuðunum fyrir efnahagshrunið. 1200 milljón króna lán svipar ekki til, – 1200 milljóna króna láni svipar til…
Ákveðið hefur verið að friða Langasjó. Það er góð ákvörðun. Eitthvað er eignarfall orðsins á reiki. Menn segja og skrifa ýmist Langasjós, eða Langasjóar. Líka mætti segja Langasjávar. Fróðlegt væri að vita hver málvenja er í Skaftafellssýslum í þessu efni.
Í fréttum Stöðvar tvö (20.02.2011) var talað um mál væri á bið og að stöðva olíuleka frá Goðafoss. Hvorugt getur talist til fyrirmyndar.
Skildu eftir svar