Kafarar skoðuðu undir Goðafoss í dag var sagt í sexfréttum Ríkisútvarpsins (23.02.2011) Sama orðalag var notað í fréttum Ríkissjónvarps. Þetta er hálfklaufalegt orðalag. Betra hefði verið að segja, að kafarar hefðu skoðað botn Goðafoss í dag. Í yfirliti um efni sama fréttatíma var talað um að berja(uppreisnina í Líbíu) á bak aftur. Þetta er rangt. Talað er um að brjóta á bak aftur í merkingunni að bæla niður. Svo er líka hægt að tala um að berja eitthvað niður. Fleira var athugavert við þessa frétt eins og til dæmis að tala um… að höfuðborginni hafi verið lokað af.
Formaður Sjálfstæðisflokksins,sem Morgunblaðið kallaði nýlega vikapilt Streingríms J. á ekki upp á pallborðið í Hádegismóum. Mbl.is birt frétt um Icesave (24.02.2011) sem að meginefni var viðtal við Árna Pál Árnason. Í niðurlagi fréttarinnar var svo ein lína: Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins tekur í sama streng. Öðruvísi mér áður brá.
Það var mikil uppsláttarfrétt á Stöð tvö (22.02.2011) að Atlanta flugfélagið væri að flytja hergögn og líklega vopn fyrir Bandaríkjaher til Afghanistan. Kvöldið eftir varð fréttastofa Stöðvar tvö að éta þetta allt ofan í sig. Fréttin reyndist tilhæfulaus. Þegar fréttastofan var að bera þetta til baka var talað um innihald flugvélanna. Þar hefði farið betur á því að tala um farm flugvélanna.
Í fréttum Ríkissjónvarps (23.02.2011) var tekið svo til orða: Helmingur þeirra hugmynda…hafa átt viðkomu… Betra hefði verið: Helmingur þeirra hugmynda …. hefur haft viðkomu eða er kominn frá …Svo var sagt: Hugmyndahús háskólanna verður hinsvegar lokað næsta mánudag. Betra hefði verið: Hugmyndahúsi háskólanna verður hinsvegar lokað á mánudaginn (kemur).
Frétt Stöðvar tvö (23.02.2011) um uppsagnir karla og kvenna á heilbrigðisstofnunum víðvegar um landið var botnlaus. Okkur var sagt, að 15 körlum og 92 konum hefði verið sagt upp. Okkur var hinsvegar ekki sagt hve margir karlar og hve margar konur störfuðu við þessar stofnanir áður en uppsagnir komu til framkvæmda.. Þess vegna vissum við ekkert um hvort hlutfallslega fleiri konum en körlum hefði verið sagt upp. Undarlega slök vinnubrögð.
Merkilegt hvað Ríkissjónvarpinu gengur illa að láta seinni fréttir hefjast á réttum tíma (23.02.2011) þótt ekkert hafi borið út af í dagskránni. Það þarf að fá fólk sem kann á klukku til að stjórna útsendingunni.
Fínt viðtal í Kiljunni við Unu Margréti Jónsdóttur, sem unnið hefur merkilegt menningarstarf með söfnun og rannsókn söngvaleikja. Molaskrifari tekur undir allt sem þau Páll Baldvin og Kolbrún sögðu um Fátækt fólk Tryggva Emilssonar. Seilist fljótlega upp í hillu til að endurlesa þá góðu bók.
Mjög góður pistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Morgunblaðinu (24.02.2011). Hún veltir því fyrir sér hvort fyrrum andstæðinga Ólafs Ragnars snúist til varanlegs fylgis við hann. Það eru kannski svona innanbúðarhugleiðingar. Kolbrún greinir ástandið rétt: Á Bessastöðum situr einstaklingur sem trúir fyrst og fremst á sjálfan sig og eigið ágæti og sér fátt annað.
Skildu eftir svar