«

»

Molar um málfar og miðla 541

  Molaskrifari hélt að  búið  væri  að gera orðalagið  að sigra kosningar útlægt  úr  fréttastofu Ríkisútvarpsins. Svo er ekki. Það lifði góðu lífi í  morgunútvarpi  Rásar eitt (25.02.2011)

Hvað segir málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins um orðalagið: Höfum það gaman saman?  Þetta orðalag glymur aftur og aftur í eyrum okkar  í  auglýsingum Ríkisútvarpsins um eigin dagskrá. Það er því heimasmíðað. Fróðlegt væri að heyra álit sérfræðings.

 Í íþróttafréttum mbl.is (25.02.2011) var talað um að tiltekinn íþróttamaður  vildi komast á lán.Líklega var átt  við að hann vildi leika sem lánsmaður með öðru félagi. Meira úr mbl. is  sama dag: Ingvar er aðeins annar Íslendingurinn sem keppir í háskólafimleikunum í Bandaríkjunum… Verið er að reyna að segja okkur að aðeins tveir  Íslendingar hafi náð þeim árangri að keppa í  fimleikum með háskólaliði í Bandaríkjunum. 

Valsmenn sveifluðu svo leiknum sér í vil, sagði íþróttafréttamaður Stöðvar tvö (26.02.2011). Ekki er þetta vel orðað.

 Molaskrifari  hefur efasemdir um  svohljóðandi fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (26.02.2011): Hveitiuppskera í uppnámi. Molaskrifari hélt að   uppnám væri  ringulreið eða  eitthvað í þá áttina. Þarna er verið að tala um yfirvofandi  uppskerubrest á hveiti.

  Á bókamarkaði í Perlunni kennir margra grasa, góðra grasa. Molaskrifara sýnist þó, að  þar sé ívið  meira  af  dýrum  bókum en var í fyrra. Samt er hægt að gera  kjarakaup. Molaskrifari fór út með fjórar bækur fyrir  2800 krónur. Góðar bækur, að sjálfsögðu. Rakst þar á litla  bók sem heitir Betrun, undirtitillinn er eitthvað í þessa veru: Hvernig  bæta má stjórnun og leiðrétta mistök. Bókin kostaði aðeins  490 krónur. Höfundur er fyrrverandi forstjóri Sjóvátryggingafélags Íslands. Molaskrifari féll ekki fyrir  freistingunni. Kannski verður þessi bók eftirsótt af söfnurum, er fram líða stundir. Hver veit?  Bókina kynnti  Vefverslun Forlagsins á sínum tíma með þessum orðum :  Í bókinni rekur Þór hvernig hann tókst á við verkefnin sem biðu hans þegar hann settist í forstjórastól Sjóvár; rekstur, samskipti, starfsanda, ímynd – en ekki síður mistökin og lærdómana. Þetta er gagnleg lesning fyrir stjórnendur og leiðtoga og lífleg hvatning til að ná enn betri árangri. Í bókinni  segir sennilega ekki frá örlögum bótasjóðs  félagsins og  11-12 milljarða framlagi skattborgaranna til að bæta  fyrir mistök eigenda og stjórnenda félagsins.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>