Eftirfarandi frétt var á bls. 2 í Morgunblaðinu og á mbl.is (04.04.2011): Dash-flugvél frá Flugfélagi Íslands hæfði svan á flugi við flugtak frá Ísafjarðarflugvelli í gærmorgun með þeim afleiðingum að svanurinn féll særður til jarðar. Að sögn sjónarvotta, sem voru í hóp-kajakferð rétt við flugvöllinn, var flugvélin rétt búin að draga inn hjólin þegar svanurinn kom aðvífandi. Þeir sögðu jafnframt að aðeins hefði munað hársbreidd að svaninum tækist ekki að sveigja frá hreyfli vélarinnar. Þessi frétt er skrifuð af einstakri snilld. Flugvélin hæfði svan sem kom aðvífandi og aðeins munaði hársbreidd að svaninum tækist ekki að sveigja frá vélinni! Snilli þeirra Moggamanna eru engin takmörk sett, en þeir eru hittnir flugmennirnir hjá Flugfélagi Íslands.
Í íþróttafréttum Stöðvar tvö (04.04.2011) var talað um að lýsa gríðarlegri virðingu gegn einhverjum, átt var við að einhverjum væri vottuð virðing.
Fréttamaður Ríkissjónvarps (04.04.2011) talaði um góðan þorskafla í Faxaflóa og sagði, að netin hefðu verið úttroðin af fiski. Þetta orðalag hefur Molaskrifari aldrei heyrt. Þegar vel aflast í net er talað um að netin séu bunkuð. Netin voru bunkuð af þorski. Molaskrifari hefur ekki fundið þess dæmi að talað sé um úttroðin net af þorski.
Það var engin amböguþurrð í sexfréttum Ríkisútvarpsins (04.04.2011). Þar var sagt: … helsta vandamál skólamáltíða á Norðurlöndunum er …. (allsstaðar er hægt að finna vandamál), hafa stefnt hátt á annan tug háttsettra manna, hafast við bág kjör,ásakanir ,sem gerðar hafa verið á hendur, virkjunin verður staðsettt… Það væri heillaráð, ef málfarsráðunautur stundum læsi handritabunkann, áður en hann er lesinn fyrir okkur.
Hér var á dögunum rætt um hvort segja ætti í eignarfalli fleirtölu viðræða eða viðræðna. Gamall skólabróðir Molaskrifara kann enn málfræði, sem hann lærði í fyrsta bekk í gagnfræðaskóla, en þá lásu allir íslenska málfræði eftir Björn Guðfinnsson: ,, Í þeirri bók, er athugagrein við nafnorðabeygingar, sem hljóðar svo: Veik kvenkynsorð, sem enda á a í nf.et. enda á –na í ef.ft. nema þau, sem enda á a í nf.et. og hafa hvorki g né k í stofni.
Svona reglur lærði maður þá utanað og þær sitja í skallanum á manni eftir 61 ár!” Molaskrifari getur ekki sagt annað en þetta sé vel af sér vikið.
Umfjöllun Kastljóss um Icesave auglýsingar (04.04.2011) var ekki merkileg. Hinsvegar má ekki á milli sjá hvor er verri hákarlsauglýsing Já-manna eða barnaánuðarauglýsing Egils Ólafssonar, sem er Nei-maður.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Harpa Björnsdóttir skrifar:
11/04/2011 at 15:06 (UTC 0)
Ræða er bæði til í eintölu og fleirtölu, þar af leiðandi viðræða líka, sbr. viðræður. Viðræður í ft enda á -na í ef = viðræðna, sbr, vera kallaður til viðræðna……hægt að sjá þetta nánar á orðabók háskólans á netinu…… sem er mjög góður vefur að fletta upp í þegar maður er í vafa, sjá: http://www.lexis.hi.is/ og velja Ritmálssafn á flipanum til vinstri og fara í orðaleit þar…