«

»

Molar um málfar og miðla 624

 

Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar, hið minna,  var rakkað niður í sexfréttum Ríkisútvarpsins (06.06.2011) þannig að ekki stóð steinn yfir steini. Álitsgjafinn var  sagður sérfræðingur  við Lagastofnun Háskóla Íslands. Þess var svo getið  í framhjáhlaupi  í lok fréttarinnar, að sérfræðingurinn  starfar undir hatti Háskóla Íslands, en það er Landssambandsíslenskra útvegsmanna, sem greiðir launin hans. Umsögn hans ber auðvitað að skoða í því ljósi.  Þeirrar stöðu hans var ekki  getið í fréttum Ríkisjónvarpsins  þetta sama  kvöld. Þess var líka látið  rækilega ógetið, þegar fjallað var um þetta sama frumvarp í  morgunútvarpi Rásar tvö (07.06.2011). Þar vakti nú ef til vill mesta  athygli munnsöfnuður þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hlustendur  eiga heimtingu á að geta  metið ummæli  sérfræðingsins með þá  vitneskju að leiðarljósi að hann er launaður af LÍÚ, Landssambandi íslenskra útvegsmanna. Þetta voru ekki fagleg vinnubrögð hjá  fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Molavin sendi eftirfarandi:

,,DV segir á netsíðu sinni að íslenzkur fangi hafi verið látinn laus eftir fjögurra ára fangelsisvist í Brasilíu: „Karl er nú laus ferða sinna og kominn aftur til landsins. Hann hefur sést á landinu undanfarið og meðal annars í félagsskap Ásgeirs Þórs Davíðssonar, eða Geira á Goldfinger.“

Það er honum áreiðanlega léttir að vera aftur frjáls ferða sinna, en að vera „laus ferða sinna“ kann að hafa eitthvað með núverandi félagsskap að gera”.

Molaskrifari þakkar sendinguna.

Í fréttum Stöðvar tvö (07.06.2011) var   sagt frá  því að íslensk börn hefðu bætt verulega  við þyngd sína á tilteknu tímabili. Svo var sagt að  aukið  sjónvarpsgláp og tölvunotkun hafi haft  mikið um það að segja.  Þetta er ekki mjög vel orðað. Betra hefði verið að segja, að aukið sjónvarpsgláp og tölvunotkun  væru  að líkindum  orsakir þyngdaraukningarinnar.

Það fór ekki mikið fyrir  fréttaflutningi Morgunblaðsins af  endurskoðun fimmtu  efnahagsáætlunar AGS fyrir  Ísland (07.06.2011). Enda  voru fréttirnar frá AGS jákvæðar fyrir land og þjóð og  ríkisstjórnina. Það er ekki nokkur ástæða  til að segja ítarlega frá  slíku að  mati  þeirra, sem stjórna fréttaflutningi Morgunblaðsins, sem fyrir löngu er hætt að vera marktækur fréttamiðill.

Ágætur pistill Gísla Kristjánssonar frá   Tromsö í morgunútvarpi  Rásar tvö (07.06.2011).  Umsjónarmenn Rásar tvö, sem  segjast aldrei  hafa heyrt  bandaríska  stjórnmálamanninn Mitt Romney nefndan  á nafn eiga ekki að reyna að spjalla við hlustendur um bandarísk stjórnmál og væntanlegar forsetakosningar þar.. Og þótt umsjónarmenn séu ánægðir með það sem þeir eru að  gera, er alveg óþarfi að segja   very good við hlustendur  áður en lokað er fyrir hljóðnemann. Það var nú kannski slys. En það er   góð regla  fyrir útvarpsmenn að segja aldrei neitt  við hljóðnema, sem ekki er ætlað hlustendum. Það hafa  ýmsir farið flatt á að  fylgja ekki þeirri reglu.

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Því skal haldið til haga að það var ekki einn umsjónarmanna morgunútvarps Rásar tvö ,sem sagði very good áður en lokað var fyrir hljóðnermann. Heldur var það gestur þeirra. Leiðréttist það hér með.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>