Það bregst ekki að hjá Ríkissjónvarpinu í Efstaleiti hefur fótbolti algjöran forgang. Laugardaginn fyrir Hvítasunnu var fótboltaumfjöllun í tæpa þrjá klukkutíma frá klukkan þrjú til klukkan að verða sex. Auðvitað var sjálfsagt að sýna beint frá leik íslenska landsliðsins gegn Hvíta Rússlandi. Ekki hefur Molaskrifari á móti því. En af hverju allt þetta kjaftæði á undan og eftir? Ekki virtist hinsvegar mikill á hugi á leiknum í Danmörku, því áhorfendur voru sárafáir. En þetta var ekki nóg fyrir fótbóltafíklana, sem ráða ríkjum í Efstaleiti. Klukkan hálf sjö hófst aftur fótbolti sem nú stóð til klukkan að ganga tíu. Bein útsending frá leik Danmerkur og Sviss. Tveir fótboltaleikir og fótboltafjas í næstum sex klukkustundir sama laugardaginn er meira en nóg af því góða. Lausleg athugun leiddi í ljós að hinar norrænu stöðvarnar eru ekki misnotaðar með þessum hætti. Leik Danmerkur og Sviss hefði sem best mátt geyma og sýna t.d. eftir miðnætti, ef ástæða var til að sýna hann. Á þessum besta tíma kvölds hefði átt að sýna efni sem höfðar til fleiri áhorfenda en fótboltaleikur númer tvö þann daginn. En þetta er eftir öðru. Dagskrárstjórn Ríkissjónvarpsins er meira en í molum. Hún er í rusli. Íþróttadeildin hefur lagt stofnunina undir sig.
Það er hneyksli.
Fornleifar fanga lögreglumann (11.06.2011) er fín fyrirsögn á baksíðu Morgunblaðsins.
Úr dv.is (11.06.2011): Á Alþingi í dag mælti forseti þingsins fyrir því að stofnuð yrði prófessorsstaða til heiðurs Jóns Sigurðssonar. Til heiðurs Jóni Sigurðssyni ætti þetta að vera.
Yfirborð árinnar Lågen í Guðbrandsdal er nú tekið að sjatna (mbl.is 12.06.2011). Ekki man Molaskrifari betur en hefð sé fyrir því í íslensku að kalla ána Löginn.
Glöggur lesandi sendi Molum farandi (11.06.2011): Í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. ,,Fréttamaður sagði m.a. frá því, að á Akureyri hefði „einn verið tekinn fyrir ölvun undir áhrifum áfengis“. Í næstu frétt fjallaði fréttakona um eldvirkni í Eyjaálfu. „Óttast er að jarðhræringarnar geti ollið skriðuföllum“. Sögnin „að valda“ er ekki einföldust allra íslenskra sagnorða í meðförum. Mörgum verður fótaskortur á því svelli.” Rétt er, að ekki valda allir fréttamenn því að nota sögnina ,,að valda” rétt. Molaskrifari þakkar sendinguna.
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
13/06/2011 at 09:57 (UTC 0)
Jú, það er sennilega hárrétt hjá þér, Leifur.
Leifur skrifar:
13/06/2011 at 01:24 (UTC 0)
Er ekki orðið hvítasunna skrifað með litlum staf?
Kveðja, Leifur