«

»

Molar um málfar og miðla 658

Orðið Ríkisútvarp er nú orðið bannorð  í Ríkisútvarpinu. þetta var staðfest enn einu sinni í  fréttatíma Ríkissjónvarpsins (14.07.2011), þegar Bogi Ágústsson fréttaþulur sagði okkur, að RÚV hefði opnað nýjan vef. Ekki Ríkisútvarpið. Heldur RÚV. Svo er í tíma og ótíma tönnlast á: Hér á RÚV, með alveg sérstaklega hvimleiðum áherslum.

Til eru samtök sem láta sig Ríkisútvarpið varða og vilja  veg þess sem  mestan. Varaformaður þessara samtaka er Valgeir  Sigurðsson,  fræðimaður og rithöfundur. Hann skrifaði  grein  í Morgunblaðið   í  vikunni og  sagði þar:

„Sú nýlunda heyrist nú daglega í Ríkisútvarpinu, að starfsmenn þar á bæ eru hættir að kalla stofnunina sínu rétta nafni, heldur búa til skammstöfunina RÚV. Ekki stafar þetta af því að nafnið sé of langt og fari illa í munni. Annað mál var, þegar þrjú löng orð: Samband íslenzkra samvinnufélaga, voru stytt og kallað SÍS, enda náði sú nafngift fljótt fótfestu í málinu.

Nei, hér liggur eitthvað allt annað að baki en málfarsleg nauðsyn. Það skyldi þó ekki heldur vera hitt, sem bæði mér og mörgum öðrum hefur dottið í hug: Þeir sem nú stjórna málefnum Ríkisútvarpsins, illu heilli, lifa enn í þeim bjálfalegu draumórum nýfrjálshyggjunnar, að ekkert megi heita Ríkis… Þeir vilja venja okkur af að nota þetta orð. […]“ 

 Þetta er kjarni málsins.  fáeinir, misvitrir  stjórnendur í Efstaleiti  hafa ákveðið að  orðið Ríkisútvarp skuli útlægt gjört. Nú þurfa  ráðamenn að taka fram fyrir hendurnar á þessu fólki. sem fyrst. 

Úr fréttum Ríkissjónvarpsins (13.07.2011)… en þær hugmyndir hafa aðeins verið á hugmyndastiginu, sagði fréttamaður !  Það var og.

Þórhallur Jósepsson sendi Molum eftirfarandi (12.07.2011) ,,Það er alltaf dapurlegt að skrifa fréttir af alvarlegum slysum, en hálfu dapurlegra er þegar blaðamenn hirða ekki um að fara rétt með eða kunna ekki landafræði Íslands í grófustu dráttum. Fyrirsögn mbl.is er:
„Alvarlegt bifhjólaslys á Skaga“
Síðan segir í inngangi fréttarinnar;
„Landhelgisgæslunni barst kl. 18:50 beiðni frá Neyðarlínunni um útkall þyrlu vegna alvarlegs bifhjólaslyss sem varð nyrst á Tröllaskaga.“
Hvergi í fréttinni eru aðrar eða nánar upplýsingar um slysstaðinn, var hann á Skaga eða Tröllaskaga? “  Molaskrifari  þakkar sendinguna og þarfa ábendingu.

Í fréttum  Ríkissjónvarpssins (13.07.2011) var ítarlega sagt  frá nýrri amerískri sápuþáttaröð. Vekja á Dallas þættina upp frá  dauðum. Ekki þarf að efa, að  sjónvarp  ríkisins  sé  búið að tryggja sér sýningarréttinn.   Miklu skiptir að íslenska þjóðin fari ekki á mis við svona háþróað menningarefni.

Það var   Séð og  heyrt lykt  af  dagskrárkynningu Ríkissjónvarpsins (13.07.2011) þegar talað var  útvarpsmanninn ástsæla !    Hver  er  mælikvarðinn?  Hvernig er mælt ?   Af hverju er þessi útvarpsmaður talinn ástsælli en aðrir?  Fáránlegt.  Margir hafa  varla heyrt manninn nefndnan.  

 Í auglýsingu um þjóðhátíð í Vestmannaeyjum  í Ríkissjónvarpinu er  vörumerki Tuborg. Tuborg framleiðir áfengi. Enn einu sinni brýtur  Ríkisútvarpið lög. Hvar eru þeir ráðherrar  sem bera ábyrgð á síendurteknum lögbrotum Ríkisútvarpsins?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>