«

»

Molar um málfar og miðla 660

Tugir fólks úr tökuliði stórmyndar Ridleys Scott, Prometheus, gistir á hótelinu …   segir í  Fréttablaðinu  (15.07.2011)  Tugir fólks  gista,  ekki gistir. Skip og bátar sem boðað hafa komu sína á Sail Húsavík eru farnir að koma til hafnar..  segir á á mbl.is (15.07.2011). Skip og  bátar eru farin að koma til hafnar   færi betur á að segja.  

Það verður að segjast eins og er, að Landinn sem Ríkissjónvarpið sýnir á sunnudagskvöldum  er eiginlega eina nýjungin í dagskrárgerð þar á bæ, sem hefur heppnast reglulega vel. Landinn er yfirleitt fínn þáttur. Sama verður ekki sagt um nýjan þátt , Andri á  flandri, sem var á  dagskrá  föstudagskvöldið 15. júlí. Einstakt þunnildi. Það er hægt að gera miklu betur í dagskrárgerð en þetta.

Þorkell Guðbrandsson sendi  Molum eftirfarandi: ,,Var að hlusta á umfjöllun um hina sorglegu stöðu flóttafólks í Austur-Afríku. Í framhaldinu var fólki bent á að hringja í tiltekið símanúmer og þá yrði ákveðin upphæð „dregin af símareikningnum“. Þetta finnst mér vera hugsunarskekkja. Það best ég veit, verður næsti símareikningur hærri sem nemur þessari fjárhæð, því ekki mun ætlunin að símafyrirtæki lækki símareikninginn?  Kannski er ég bara að misskilja allt saman.”  Þú misskilur ekkert, Þorkell.  Þetta  er  hugsunarvilla því  eins og þú bendir á , er upphæðinni bætt við símreikninginn þinn.

Sigurður Örn Þorleifsson sendi Molum línu og segir: ,,Mér finnst það vera orðið til undantekninga að þessi orð séu borinn rétt fram, t.d einn lítri og einn metri yfirleitt er sagt einn líter í matreiðsluþáttum t.d hjá Jóa Fel, og svo í golfþætti á RUV hjá Gunnari Hanssyni þar staðnæmist kúlan alltaf hálfan meter frá holunni.”   Molaskrifari þakkar réttmæta ábendingu.

Orðið glaðningur er  aðeins  til í eintölu. Þessvegna  eiga umsjónarmenn Rásar tvö í  Ríkisútvarpinu ekki að  tala um glaðninga  þegar þeir kynna  efni í þætti  sínum.  Molaskrifari hefur   ekki heyrt þessa orðnotkun áður, né  heldur að  talað sé um að eitthvað sé óhugnandi eins og  gert var í morgunútvarpi  Rásar  tvö (15.07.2011) Í sjöfréttum Ríkisútvarps (15.07.2011) sagði fréttamaður,sem  fréttirnar las: Lögreglan á höfuðborgar var tilkynnt um líkamsárás … Lögreglan var ekki tilkynnt um… Lögreglunni var tuilkynnt um.  Hér er á ferðinni enn eitt  dæmið um að fréttaskrifarar halda að orð  í upphafi setningar verði að vera  í nefnifalli.

7 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Anna R. skrifar:

    Samkvæmt Ritmálssafni Orðabókar Háskólans getur orðið ‘glaðningur’ líka þýtt veisla. Samanber þessi þrjú dæmi:

    „Venjur við hátíðahöld, tyllidaga og glaðninga“ (tímaritið Íslendingur 1860-1865)

    „Ýmsar veislur voru gestunum haldnar. Þar á meðal glaðningur í ráðhúsinu“ (Kvennablaðið 1914)

    „Skipshöfnum á róðrarskipum voru á hverri vertíð haldnir glaðningar eða veizlur“ (Saga Vestmannaeyja 1946)

    Orðið glaðningur í merkingunni VEISLA er greinilega alveg dottið úr málinu. En ég held að það sé full ástæða til að hefja það til vegs og virðingar á ný. Ég er þegar farin að leggja drög að því að bjóða vinum mínum í almennilegan glaðning.

  2. Eiður skrifar:

    Takk fyrir þetta. Athyglisvert. Orðið er ekki að finna í fleirtölu í beyingalýsingu íslensks nútímamáls hjá Árnastofnun.

  3. Anna R. skrifar:

    Það er ekkert að því að nota orðið glaðningur í fleirtölu!

    Eftirfarandi setning kemur t.d. fyrir í Þjóðsögum Jóns Árnasonar: „Arfakaka eða kálgarðakaka er vannefnd meðal glaðninga í Íslands þjóðsögum“.

  4. Eiður skrifar:

    Það rekst ekki á við mína málkennd. Hún er auðvitað ekki óbrigðul.

  5. Sigurður Karlsson skrifar:

    Einmitt, fólk er eintöluorð. Er þá yfirleitt hægt að segja „tugir fólks“?

  6. Eiður skrifar:

    Þakka þér orðion, Berglind. Mín máltilfinning segir að rétt sé að segja: Tugir fólks gista ….

  7. Berglind skrifar:

    Eg hef alltaf haft baedi gagn og gaman ad molunum thinum en eg velti thvi fyrir mer med fyrstu athugasemdina thina hvort thu hafir mogulega verid of fljotur a ther thar sem ordid folk er eintoluord er tha ekki rett ad segja gistir?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>