Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (16.07.2011) var sagt frá heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Tyrklands. Þar talaði fréttamaður um að vera með samúð gagnvart Kúrdum. Betra hefði verið að segja: að hafa samúð með Kúrdum. Þá heyrði Molaskrifari ekki betur í sömu frétt en talað væri um að sumar bækur gætu ollið meiri skaða…. hefði auðvitað átt að vera valdið meiri skaða. Þegar Molaskrifari hugðist fá staðfestingu á þessu á vef Ríkisútvarpsins var búið að klippa aftan af þessari setningu í hljóðupptöku á streymivefnum !
Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (17.07.2011) var sagt um Eið Smára og nýjan samning ,sem hann hefur gert við grískt félag. …fái í sinn hlut jafnvirði 216 milljónir króna á samningstímabilinu. Hér hefði verið betra að tala um jafnvirði 216 milljóna króna… í sama fréttatíma var sagt frá hjólreiðakeppni og keppendur hefðu hjólað í flatlendi. Á flatlendi? Og enn um þennan íþróttafréttatíma. Þar var sagt um tvo íþróttamenn, að þeir hefðu borið hæstan hlut. Borið sigur úr býtum. Molaskrifari er á því að þarna hafi ekki verið farið rétt með. Þeir sem sigruðu báru hærri (hærra) hlut. Molaskrifari kannast ekki við að talað sé um að bera hæstan hlut í merkingunni að sigra
Yfirvinnubann flugmanna hefst klukkan tvö var sagt í áttafréttum Ríkisútvarpsins mánudaginn 18. júlí. Svo var að skilja að bannið ætti að hefjast þennan sama dag. Bannið átti hinsvegar að hefjast að hefjast þriðjudaginn 19. júlí,degi seinna. Þetta var ekki leiðrétt í lok fréttatímans. Þetta var heldur ekki leiðrétt í næsta fréttatíma. Enn er spurt: Hlustar enginn á fréttastofunni á fréttalesturinn ? Við eigum að geta treyst því að rétt sé sagt frá í fréttum Ríkisútvarpsins.
Athugull lesandi spyr vegna frétta á mbl. is (17.07.2011) Hvað er grashaugur ? Fréttin er svona: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi þar sem kveikt hafði verið í grashaug við Miklubrautina, skammt frá Skeifunni. Undarlega til orða tekið, að ekki sé meira sagt !
Mikið fjaðrafok hefur orðið vegna ummæla forseta Alþýðusambands Íslands um að almenningur eigi að sniðganga lambakjöt í verslunum vegna þess að bændur vilja 25% hækkun svokallaðs viðmiðunarverðs. Molaskrifari hefur lengi sniðgengið lambakjöt, – vegna þess hve dýrt það er orðið. Lambakjöt er orðið hátíðamatur , tiltölulega sjaldan á borðum. Sama er að segja um nautakjöt. Molaskrifari hrökklaðist frá kjötborði, þegar honum var sagt að kílóið af úrvalsnautakjöti kostaði 5500 krónur. Svínakjöt og kjúklingar að ógleymdri hrefnunni, sem hreinasta sælgæti verða því miklu oftar fyrir valinu en lambakjöt og nautakjöt.
Ótrúlegt hefur verið að lesa um hremmingar farþega sem keypt höfðu fanmiða með Iceland Express frá París til Íslands um helgina. Forstjórinn segir alla hafa fengið skilaboð. Enginn kannast við að hafa fengið skilaboð. Félagið segir að vélin hafi bilað. Í fréttum og frönskum fjölmiðlum kom fram að frönsk yfirvöld kyrrsettu flugvélina því hún var ekki talin flughæf. Þokkaleg landkynning sem þessi farmiðasala stendur fyrir. Farþegum troðið fjórum og fimm í 2-3 manna herbergi. Oft með bláókunnugu fólki. Fyrirtæki, sem svona koma fram við viðskiptavini sína, verða sjaldnast langlíf.
4 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
19/07/2011 at 18:50 (UTC 0)
Sæl Kolbrún. Þakka þér vinsamleg ummæli. Þetta er örugglega rétt athugað.
Kolbrún skrifar:
19/07/2011 at 13:56 (UTC 0)
Sæll Eiður, takk fyrir molana þína. Í hádegisfréttum RÚV núna áðan (19.07.) var fjallað um sólarorkuver sem „færist í aukana“ að reist séu…! Þá datt mér í hug að fletta upp „færist í aukana“ á Google. Niðurstaðan var athyglisverð; það lítur út fyrir að orðalagið að eitthvað „færist í aukana“ sé að taka við af orðalaginu að eitthvað „færist í vöxt“. Ég mæli með því að þú kíkir á Google….
Eiður skrifar:
19/07/2011 at 10:21 (UTC 0)
Sammála. Þetta er smábarnamál, sem heyrist oft í fréttum Ríkisútvarpsins.
Geirþrúður Sigurðardóttir skrifar:
18/07/2011 at 23:51 (UTC 0)
Tók eftir því að í fréttatímanaum í hádeginu 18.07. var fréttamaðurinn að lýsa hremmingum flugfarþega I.E. sem flugu heim í gærnótt, staðinn fyrir í fyrrinótt, mér finnst þetta vera smábarnamál eða hvað finnst þér?
Kv. Geirþrúður