«

»

Molar um málfar og miðla 676

 

Lesandi skrifar: ,, Nú er orðið „cross fit“ mikið í fréttum. Mikið væri ég til í að heyra íslenskun á þessu. Er kannski til orð yfir þessa íþrótt? Fjölþraut? Alþraut? “ 

Hér m eð  er óskað  eftir tillögum lesenda um gott   íslenskt  orð, sem nota  má  þessa írþrótt eða keppnisgrein.

Annar góðvinur Molanna  Molanna sendi eftirfarandi: ,,Á mbl.is (1.8.2011) er fyrirsögn: „Hvern langar ekki til að vera Eyjapæja?“.  Spurningin í fyrirsögninni er eignuð ungri stúlku á þjóðhátíð í Eyjum um kynsystur sínar.  Hér er greinilega ruglað saman karlkyni og kvenkyni spurnarfornafnsins “hver“ og notuð karlkynsmynd orðsins í þolfalli.  Hér ætti auðvitað að vera „Hverja langar ekki til að vera Eyjapæja?“ (eintala) eða „Hverjar langar ekki til að vera Eyjapæja?“ (fleirtala) , þ.e. kvenkynsmyndin af fornafninu i þolfalli.  Blaðamaður hefði mátt hafa leiðrétta útgáfu í fyrirsögninni.  Ef spurningin hefði átt við um karlmenn myndi hún hafa verið:  „Hvern langar ekki til að vera Eyjapeyi?“ (eintala) eða „Hverja langar ekki til að vera Eyjapeyi?“ (fleirtala).” http://www.mbl.is/folk/frettir/2011/07/31/hvern_langar_ekki  Molaskrifari þakkar kærlega fyrir sendinguna. 

Undarleg fjögurra dálka fyrirsögn var á baksíðu Morgunblaðsins (31.007.2011):  Veðrið spilar með fjöldann. Fyrirsagnarhöfundur var að reyna að segja lesendum að veðrið hefði áhrif á það hvert fólk  færi um helgina. Ekki mjög vel orðað. Veðrið hefur áhrif á aðsókn, –  ekki ný sannindi !

Algengt er  að heyra  talað um að koma á móts við, þegar Molaskrifari hefði talið eðlilegra að tala um að koma til móts við. Ég mætti henni á móts við verslunina Ingólf.  Kaupmaðurinn kom nokkuð til móts við mig og lækkaði skuldina.

Í  vefauglýsingu   um  svokallaða ,,græna áskrift” eða vefáskrift að DV er hvað  eftir annað talað um  áskrift af DV, sem er ekki í samræmi við málvenju. Fólk kaupir  áskrift að blaði, ekki af blaði.  Rétt er að geta þess að villan var leiðrétt eftir  verslunarmannahelgi.

Komdu þér burt úr kuldanum auglýsir  farmiðasalan Iceland Express sem alltaf er að þykjast vera flugfélag. ,,Kuldinn” á Íslandi hefur verið svo  frá  tíu og talsvert yfir   tuttugu gráður undanfarna  daga, hiti reyndar , – ekki kuldi. Umfram allt er þetta heldur ósmekkleg auglýsing.  

Er að koma í ljós að hækkanir séu of háar, spurði fréttamaður í fréttum Stöðvar tvö (31.07.2011) Hækkanir geta hvorki verið lágar né háar. Miklar geta þær verið, litlar verulegar eða óverulegar.

Þrennt annað, – kannski  ekki allt  stórvægilegt  hnaut Molaskrifari um í þessum sama fréttatíma  Stöðvar tvö.  Þar var talað um að skjóta upp  flugeldasýningu  ( þá verður flugeldasýning, flugeldum verður skotið á loft), ná útlitslegri fullkomnun, ( laga útlitið)  og hámarka  árangur (bæta árangur).

3 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Jóhannes skrifar:

    Ég hef heyrt þessa ágætu íþrótt kallaða ‘þver-þrek’.

  2. Eiður skrifar:

    Þakka þér línurnar, Sigurður. Ég er búinn að látavorðið alþingiskona fara í taugarnar á mér síðan í árdaga Kvennalistans.

  3. Sigurður G. Tómasson skrifar:

    Það er eðlileg málnotkun að nota karlkyn í samböndum eins og „hvern langar ekki?“, þótt viðfangið sé kvenkyn. Þetta hefur sjálfsagt verið gert alla tíð. Það er líka eðlileg málnotkun að tala um foreldra í hvorugkyni, þótt málfræðikynið sé karlkyn. Hið sama á við ýmis starfsheiti. Kennarar og læknar t.d. eru bæði konur og karlar og hið sama á við um alþingismenn, þótt misviturt baráttufólk viti það ekki. Tungumálið er ekki að öllu leyti rökrétt og verður víst aldrei.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>