«

»

Molar um málfar og miðla 680

Fjöldi góðra  nýyrða hefur verið  búinn  til um ýmis tól og tæki sem okkur  hafa borist. Nægir þar að minna á orð  eins og  sími, sjónvarp, útvarp, þota, þyrla. Af nógu er  að taka. Í  Ríkisútvarpinu  hafa  míkrófónar  verið auglýstir að undanförnu. Um þessi  tæknitól er  til  prýðilegt íslenskt orð,- orðið hljóðnemi. Gegnsætt og gott. Tæki sem nemur  hljóð. Ef á  auglýsingastofu  Ríkisútvarpsins starfaði einhver  með svolitla máltilfinningu hefði   auglýsanda verið bent á þetta og íslenska orðið notað. Hvar er  málstefna Ríkisútvarpsins?  Það er ekki nóg að semja  gott  plagg og  stinga því svo niður í skúffu og veifa á tyllidögum.

Í fréttum Stöðvar tvö (05.08.2011) var talað um þörf  fyrir þessari þjónustu. Hefði átt að vera, þörf  fyrir þessa þjónustu. Þörf fyrir eitthvað, þolfall, ekki þágufall.

Vonandi var það  mismæli en ekki vankunnátta þegar sú sem kallar sig ,,Morgunfrú” Ríkisútvarpsins talaði um skáldið Stephan G. Stephansson sem  Stephan G. Stephensen (05.08.2011). Skagfirðingurinn Stefán Guðmundsson breytti nafni sinu er hann flutti  til vesturheims eins og  svo margir gerðu fljótlega eftir komuna vestur. Hann  var Stephanson en ekki -sen.

Guðný sendi Molaskrifara línu (05.08.2011) og benti á eftirfarandi á pressan.is: Það var í Kína sem hinn óheppni Zhang Bo brá heldur betur í brún þegar mótorhjólið hans sporðrenndist skyndilega og hann fór á flug. Í þessari stuttu setningu eru tvær  villur hið minnsta:  Fyrst er  sagt að hinn óheppni Zhang Bo  hafi brugðið í brún. Einhver  bregður  ekki í brún.  Einhverjum bregður í brún. Í öðru lagi er sagt: … mótorhjólið hans  sporðrenndist…! Líklega  hefur  viðkomandi  ætlað að   segja:  Mótorhjólið sporðreistist, stakkst á  endann, valt. Að sporðrenna er að kokgleypa, gleypa í heilu lagi.. Hvílíkt  rugl. Molaskrifari þakkar sendinguna. 

Því þynnri sem  þættir í  Ríkissjónvarpinu eru því meiri áhersla er  lögð á að auglýsa þá í  dagskrárauglýsingum    sjónvarpsins. Þannig var með   þáttinn  Andri á  flandri (05.08.2011). Viðmælandi skrifari   baðst afsökunar á slettunni, en sagði að þessir  þættir  væru einskonar egótripp !  Er það annars ekki  þvert á   viðvaranir   Umferðarstofu að vera  með þung  gæludýr laus og óbundin í  bíl ? Það er  eins og mig minni að það sé talið hættulegt.  

Í fréttum Ríkissjónvarps (05.08.2011) var talað um að skora á  til að koma. Þarna  var  forsetningunni til  ofaukið. Nægt  hefði að segja að  skora á að koma.

 Úr mbl.is (05.08.2011)  Fólkið var á ferð á ísnum um 40 km frá Longyearbyen. Asta Ødegaard, talsmaður sýslumannsembættisins á Svalbarða segir við vef Aftenposten … Frétt  mbl.is (http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/08/05/lest_eftir_eftir_aras_isbjarnar/ ) af því er hvítabjörn  drap  breskan ungling á  Svalbarða er ekki mjög  nákvæm sé  hún borin saman  við  frétt aftenposten.no  um sama  atburð. Sjá: http://www.aftenposten.no/nyheter/iriks/article4192886.ece

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Þetta er ekki unnt að skilja á annan veg en að Teitur sé að verða tíræður !

  2. Guðmundur Þór Ásmundsson skrifar:

    Blogg DV
    Brestir Tryggva Þórs Herbertssonar, Teitur
    11:09 › 5. ágúst 2011
    Hvað ætli Teitur sé gamall? Hann skrifar:
    Þegar ég var dyravörður á skemmtistaðnum 22 á öndverðri síðustu öld,

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>