Það var hreint ótrúlegt að upplifa það, að klippt var á Steingrím J. Sigfússon verðandi fjármálaráðherra í miðri setningu í beinni útsendingu frá Hótel Borg. Og hversvegna var klippt á Steingrím? Til að geta sýnt handbolta ! Hugsið ykkur. Það er verið að mynda ríkisstjórn og þá hefur handboltinn forgang!.
Þessi ákvörðun er svo heimskuleg að það tekur engu tali.
Ég hélt að það væri talsvert af fólki með viti, ágætu viti, sem starfaði hjá RÚV. Það var hinsvegar greinilega enginn úr þeim hópi við stjórnvölinn , þegar þessi arfavitlausa ákvörðun var tekin
11 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Valgeir Guðmundsson skrifar:
04/02/2009 at 15:21 (UTC 0)
Í fyrsta lagi þá voru ráðamen 20 mínútum of seinir á þennan fund. Það er að segja hin nýja ríkisstjórn leyfði sér að mæta of seint á boðaðan fund.
Í annan stað þá var þetta ekki bara einhver handboltaleikur. Þetta var úrslitaleikur heimsmeistaramótsins á næst vinsælustu íþrótt þessa lands.
Rúv var búið að greiða miklar fjárhæðir fyrir þennan leik og átti semsagt bara að bíða með útsendinguna á meðan ný ríkisstjórn tók sér sinn tíma.
Mér finnst það argasti dónaskapur að mæta of seint á boðaðan blaðamannafund, og það er það sem er fréttnæmt. Ekki að menn skiptu yfir í beina útsendingu á handbolta 30 mínútum eftir að fundurinn átti að hefjast.
Magnús V. Skúlason skrifar:
02/02/2009 at 14:58 (UTC 0)
Ég einmitt hjó eftir þessu sama nema ég upplifði svo mikinn létti þegar það var klippt á hann 😉
Matthías Kjartansson skrifar:
02/02/2009 at 09:48 (UTC 0)
Ég er fylliega sammála Kalla um þetta. Steingrímur er búinn að þvaðra nóg gegnum árin og það sem hann sagði var ekkert nýtt. Það var búið að ganga frá nýrri stjórn, það lá fyrir, stjórnarsáttmálinn var klár, það lá fyrir og ekkert nýtt að gerast. Handboltinn var hin stóra fréttin á þessum tíma og því lá beinast við að skipta beint yfir á hann. Þetta er það sem er kallað fréttir í beinni, en Eiður ætti, sem gamall fréttahaukur, að muna eftir því hvernig það var að fá fréttir um líðandi heimsatburði um leið og þeir gerðust. Ég skil, hinsvegar, ekki hversvegna RÚV hefur ekki komið sér upp sérstakri íþróttarás eins og einkastöðin hefur gert.
corvus corax skrifar:
02/02/2009 at 09:12 (UTC 0)
Þetta er auðvitað ekkert nýtt. Það hefur ævinlega allt verið látið víkja fyrir helvítis boltanum hjá RÚV enda hafa þeir sem þar ráða sjálfir miklu meiri áhuga á þessu boltasprikli en öðru efni. Það er grundvallarkrafa að þessar boltaleikjasýningar fari fram á sérstakri rás með seldum aðgangi þar sem þetta er rándýrt efni og aðeins fyrir útvalda en ekki allan almenning.
Margrét St Hafsteinsdóttir skrifar:
02/02/2009 at 01:16 (UTC 0)
Ég er algjörlega sammála þér Eiður.
Ragnhildur Kolka skrifar:
01/02/2009 at 23:28 (UTC 0)
Getur ekki verið að þeir hafi bara haldið að þetta væri Steingrímur J. íþróttafréttamaður og því tímiabært að koma handboltanum í loftið?
Flosi Kristjánsson skrifar:
01/02/2009 at 23:08 (UTC 0)
Það er óneitanlega sérstök ráðstöfun að hætta útsendingu á blaðamannafundi frá þessum atburði. Þetta er klaufaskapur, það er næsta víst. Það er engin ástæða til að ætla að yfirstjórn eða deildarstjórar í RÚV beiti brögðum til að gera hlut vinstri sinnaðra stjórnmálamanna sem minnstan. Er skemmst að minnast beinnar útsendingar tvo laugardaga í röð af mótmælum á Austurvelli sem einkum beindust að eina stjórnmálaflokknum sem kallast hægri flokkur. Ergo: klaufaskapur ekki klíkuskapur!
Eiður skrifar:
01/02/2009 at 23:05 (UTC 0)
Gagnrýni mín á RÚV hefur ekkert með pólitík að gera. Þetta snýst um fréttamat,. —og mannasiði.
Sigurður Sigurðsson skrifar:
01/02/2009 at 21:36 (UTC 0)
Sammála þér Kalli Sveins, maðurinn er búinn að kjafta eins og tuska í 18 ár í stjórnarandstöðu og hefur fengið allan sinn tíma.
Þetta kommabandalag mun sem betur fer vara stutt.
Guðrún Olga Clausen skrifar:
01/02/2009 at 20:50 (UTC 0)
Ég er algerlega sammála þér um þetta. Ég var algerlega rasandi yfir vinnubrögðum RÚV. Þvílík forgangsröðun og að ég nú tali ekki um dónaskapinn gagnvart Steingrími og reyndar allri þjóðinni.
Kalli Sveinss skrifar:
01/02/2009 at 17:45 (UTC 0)
Æ góði besti Eiður!
Það er einmitt “ talsvert af fólki með viti hjá RÚV – þessvegna var klippt á kjaftaskinn Steingrím !
Allir – eða flestallir – viti bornir menn eru fyrir áralöngu búnir að fá upp í kok – af “ þvaðri“ þessa manns.
Og svo er verið að leggja þá helfjötra á þjóðina, að kjaftaskurinn verður ráðherra !
Huggun harmi gegn, að slíkt mun aðeins vara í 82 daga !
Sem sé, heiður RÚV !