Sumir þeirra sem kaupa stærstu og dýrustu slyddujeppana virðast halda að í kaupunum fylgi undanþága frá þeim reglum, sem aðrir ökumenn verða að hlíta.
Þeir halda að þeir megi leggja hvar sem er. Eigendur þessara stórjeppa notfærðu sér ekki bílastæðin við Hagkaup síðdegis í dag í Garðabæ. Þeir lögðu á gangstéttina fyrir framan dyr verslunarinnar. Sjálfsagt fótfúnir enda lagði einn þeirra að hálfu í stæði fyrir fatlaða.
Þeir telja sig undanþegna reglum um stefnuljós.
Þeir telja sig mega tala í farsímann í akstri. Líklega hafa bílarnir verið þeim svo dýrir að ekki var króna eftir til að kaupa handfrjálsan búnað.
8 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
doddý skrifar:
18/03/2009 at 13:11 (UTC 0)
steini , þú ert greininlega í framsókn. kv d
Steini Briem skrifar:
15/03/2009 at 14:40 (UTC 0)
Hún Doddý á B5 er dúlla,
draumur hjá henni að lúlla,
á Reinsanum sá hana rúlla,
í rúminu heit verður snúlla.
doddý skrifar:
15/03/2009 at 13:11 (UTC 0)
til steina briem: á B5? kv d
Steini Briem skrifar:
14/03/2009 at 19:46 (UTC 0)
Mér fyndist líka spennandi að vera hjúkrað af svona rúmgóðu glæpakvendi eins og þér, fröken Doddý.
Á stofu 6 annað kveld.
doddý skrifar:
14/03/2009 at 19:31 (UTC 0)
til steina briem: mér finnst spennandi að vera talin glæpamaður. kv d
Steini Briem skrifar:
14/03/2009 at 19:22 (UTC 0)
Ekki er von til þess að stórglæpamennirnir láti smáglæpina alveg eiga sig.
doddý skrifar:
14/03/2009 at 18:54 (UTC 0)
… en ég á svona slyddujeppa og ég nota alltaf stefnuljós, legg aldrei í stæði fyrir fatlaða, ég legg aldrei uppi á gangstétt eða næstum því á gangstétt, ég keyri mjög varlega og nota aldrei síma undir stýri. en ég er oft fótlúin því ég vinn á spítala. kv d
Maron Bergmann skrifar:
14/03/2009 at 18:15 (UTC 0)
Þú hlýtur að sjá að fólk sem á svona fína bíla á ekki að þurfa að ganga jafnvel tugi metra í rigningu og skítaveðri, það blasir við að einstaklingar sem hafa bæði efni á því að versla í Hagkaup og eiga svon fallega bíla eiga að hafa rétt á því að leggja sem næst dyrunum.