«

»

Molar um málfar og miðla 1466

Molavin sendi Molum eftirfarandi: ,,Seinfærir foreldrar fái færri tækifæri“ – svona hljóðar fyrirsögn á ruv.is (04.05.14) – og þar með hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins, eða amk. vefdeild hennar tekið upp þann ósið sem sézt hefur á öðrum miðlum, að nota viðgengingarhátt þar sem hann á ekki við og verður beinlínis villandi. Þetta er líka sérstakt í ljósi þess að viðtengingarháttur er á undanhaldi í almennum fréttatexta þar sem hann á að vera til að frásögn sé rétt. Ofangreind notkun vth. hefur að venju verið tengd hvatningu: Ökumenn aki varlega; Ráðamenn sýni skilning osfrv. Réttara væri að segja: „Seinfærir foreldrar sagðir fá færri tækifæri.“ Sú var tíðin að málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins fylgdist vel með málfari í fréttum og gaf út fjölritað leiðbeiningarrit, Tungutak, þar sem bent var á hvað mætti laga. Slíkt getur varla kostað mikið í dag; mætti gjarnan birta það á vef RUV. – Molaskrifari þakkar bréfið og þarfa ábendingu.

 

Molalesandi skrifaði (04.05.2014): ,,Merkilegt þegar fréttamenn nota fréttatímana til að koma skoðunum sinum á framfæri eins og í fréttum Bylgjunnar í hádeginu. Magnús Hlynur var með frétt af nýju framboði á Suðurland, sem kynnt var við Skógafoss í dag. Hann tók oddvitan tali, en framboðið er andsnúið byggingu hótels við fossinn og fréttamaður spurði með fullyrðingu: Eru þetta ekki ríkir útlendingar sem ætla að reisa þetta hótel? – Þetta er ekki orðrétt tilvitnun, en efnislega var þetta svona”. Molaskrifari tekur undir. Ekki fagmannlega til orða tekið.

 

Í fréttayfirliti Stöðvar tvö á sunnudagskvöld (04.05.2014) sagði Sindri Sindrason okkur frá ánni Krúnu í Ölfusi sem borið hefði þrettán lömb á þremur árum. Hún var fimmlembd í vor. Hún bar fimm lömbum. Í fréttinni var þetta rétt.

 

Rafn skrifaði (04.05.2014): ,, Í molum 1464 er fjallað um frétt um þyrlu: „af gerðinni TF-HDW Ecur­euil“ og myndatökur hennar.

Ég geri ekki athugasemd við þá umfjöllun. Hins vegar vakti þyrlugerðin athygli mína. Þótt ég sé ekki þyrlufróður þykir mér líklegt, að þyrlan sé ekki af gerðinni : „TF-HDW Ecur­euil“ heldur sé hún af gerðinni Ecureuil, en beri íslenzka skráningareinkennið TF-HDW”. Molaskrifari þakkar Rafni bréfið.

 

Vegna þess sem Molaskrifari gagnrýndi hér fyrir fáeinum dögum, að Ríkisútvarpið sendi ekki út neinar fréttir frá miðnætti til klukkan sjö að morgni segir Molalesandi í tölvubréfi (04.05.2014) ,,Mér sagði starfsmaður Útvarpsins að allar nætur væru þrír menn á vakt, fréttamaður, magnaravörður, man ekki starfsheitið á þeim þriðja. Furðulegt að sé ekki hægt að senda út fréttir, hvað sparast fyrst eru þarna þrjár manneskjur hvor sem er?” Þetta er auðvitað mjög einkennilegt. Kannski er fréttamaðurinn alla nóttina að vinna fréttir fyrir þennan örstutta fréttatíma klukkan sjö að morgni!!!

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>