Það er ástæðulaust að vera með sérstakan fimmtán mínútna íþróttaþátt milli almennra frétta og veðurfrétta eins og gert var í Ríkissjónvarpinu á laugardagskvöld (08.11.2014). Veðurfregnir eiga að koma strax í kjölfar almennra frétta. Er þetta ekki bara enn eitt dæmi um yfirgang íþróttadeildarinnar í Efstaleiti? Spurt hefur verið hvort þetta sé gert til að auka áhorf á íþróttafréttir meðan veðurfregna er beðið.
Fréttayfirlit Ríkisútvarpsins í hádegi á laugardag (08.11.2014) hófst á þessum orðum: Formanni Starfsmannafélags Kópavogs segir mikið bera í milli (verið var að segja frá kjaradeilu félagsins og Kópavogsbæjar). Þetta átti að vera: Formaður Starfsmannafélags Kópavogs segir ….. ekki formanni. Seinna í sömu setningu var talað um fullt af öðrum starfsmönnum.
Enskuslettan tax-free dynur á okkur daginn út og daginn inn. Þetta er marg endurtekið í útvarpsauglýsingum og blasir við í fjölmörgum blaðaauglýsingum. Í auglýsingareglum Ríkisútvarpsins stóð og stendur víst enn:,, Auglýsingar skulu vera á lýtalausu íslensku máli.” Auglýsingadeildin telur slettuna tax-free vera lýtalaust íslenskt mál, – eða hvað? Upphaflega var tax-free, duty free, notað um flugvallarverslanir í útlöndum sem seldu tollfrjálst áfengi, tóbak og ilmvötn, en seinna allt milli himins og jarðar. Einhverjum auglýsingabrallara datt svo í hug að nota þessa slettu um afslátt, sem verslanir ákveða að veita. Í sunnudagsmogga (09.11.2014) eru Taxfree sófar auglýstir í heilli opnu. Það sleppur enginn við að borga skatt. Hvorki verslunin né viðskiptavinurinn. Veittur er afsláttur sem er 20,32%. Það er verið að blekkja okkur með því að virðisaukaskatti sé sleppt. Er hann ekki 25,5%?
Það var heldur vond sviðsetning og hálfkjánaleg vinnubrögð í fréttum Ríkissjónvarps fyrir helgina , þegar fréttamaður stillti sér upp með leikskólabarn í fanginu fyrir framan myndavélina. Það fór ekki framhjá neinum að barninu leið ekkert sérstaklega vel.
Af forsíðu visir.ir (08.11.2014): Árlegur fundur ríkja við Eystrasalt lauk í lettnesku höfuðborginni Ríga í dag. Fundur lauk ekki. Fundi lauk.
Hraðfréttir Ríkissjónvarps á föstudagskvöld (07.11.2014) voru lélegar og ófyndnar. Staðfestu það sem við höfum flest áður upplifað. Sjónvarpsfólk hefur mestan áhuga á öðru sjónvarpsfólki. Þetta er sóun á dýrmætu dagskrárfé, sem nota mætti til góðra verka.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Kristján skrifar:
11/11/2014 at 09:51 (UTC 0)
Kannski eru meiri líkur á að fólk horfi á auglýsingar og langloku dagskrárkynningu. Þess vegna láta þeir veðurfréttirnar svona aftarlega, hér á RÚV.
Allt í þágu Mammons.
Þegar Arnar Jónsson, leikari, er farinn að auglýsa „tax free“ í útvarpinu…. ja þá er nú fokið í flest skjól.
„Hraðfréttir Ríkissjónvarps á föstudagskvöld (07.11.2014) voru lélegar og ófyndnar. Staðfestu það sem við höfum flest áður upplifað. Sjónvarpsfólk hefur mestan áhuga á öðru sjónvarpsfólki. Þetta er sóun á dýrmætu dagskrárfé, sem nota mætti til góðra verka.“
Sammála þessu. Sjálfhverfan eykst frá ári til árs. Fréttamenn á Stöð 2 geta varla flutt einföldustu frétt án þess að vera sjálfir í mynd, í tíma og ótíma.