FYRIR ÞINGINU – STAÐSETTUR
,, .. í ávarpi sinu fyrir Evrópuþinginu í Strassborg,” var sagt í hádegisfréttum Bylgjunnar (03.09.2015). Íávarpi sínu á Evrópuþinginu í Strassborg, hefði þetta átt að vera. Í sama fréttatíma var rætt við Íslending sem dvalist hefur í Búdapest í tvo mánuði. Hann sagði í lokin: ,, … maður skilur ekki alveg þennan point of view”.Strax farinn að gleyma móðurmálinu. Svo bætti fréttamaður við:,, Sagði N.N. sem er staðsettur í Búdapest”. Staðsettur? Sem er í Búdapest. Sem býr í Búdapest”.
FISKVEIÐIMENN
Í morgunfréttum Ríkisútvarps (03.09.2015) um björgun flóttamanna á á hafi úti var talað um fiskveiðimenn, sem bjargað hefðu flóttafólki frá drukknun. Sjómenn eða fiskimenn. Minnist þess ekki að hafa heyrt talað um fiskveiðimenn áður.
GESTGJAFAR HVERS?
Málfarsráðunautur Ríkisútvarps þarf að taka íþróttafréttamenn í tíma. Segja þeim til. Tveir þeirra töluðu (09.04.2015) um gestgjafa Þýskalands. Átt var við að tiltekinn boltaleikur færi, eða mót, færi fram í Þýskalandi. Þjóðverjar voru gestgjafar þeirra sem komu þangað til að keppa. Fréttin var um körfuboltaleik þar sem Íslendingar og Þjóðverjar keppa Leikurinn fer fram í Þýsklandi. Að tala um gestgjafa Þýskalands vegna þess að leikurinn fer fram í Þýskalandi er bara bull. Svipað orðalag hefur reyndar oft heyrst áður hjá íþróttafréttamönnum Ríkissjónvarps. Málfarsráðunautur þarf að segja þeim svolítið til um notkun móðurmálsins.
KOMAST Í VEG FYRIR
Af mbl.is (04.09.2015) : ,,Vilji er til að komast í veg fyrir vildarpunktasöfnun ríkisstarfsmanna, segir í frétt Túrista.” . Hér vitnar mbl.is hugsunarlaust í rangt orðalag í öðrum miðli. Hér hefði átt að standa, – koma í veg fyrir vildarpunktasöfnun, stöðva, afnema, – ekki komast í veg fyrir. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/09/04/bjoda_ut_flugmidakaup_rikisins/
INNSKOTS – R
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (04.09.2015) var talað um búsáhaldarbyltinguna. Mótmælaaldan, sem reis eftir hrunið, var kölluð búsáhaldabylting. Ekkert -r- þar. Það heyrist nokkuð oft að bókstafnum -r- er bætt inn í samsett orð Þar sem hann ekki á heima.
Molaskrifari talaði stundum um heimildarmyndir, – allt þar til honum var bent á myndirnar væru byggðar á mörgum heimildum, heimildum víða að og því væri eðlilegra að tala um heimildamyndir.
SLETTUR
Í upphafi þáttarins Samfélagið í Ríkisútvarpinu á föstudag (04.09.2015) talaði umsjónarmaður um fólk í útivistarkredsum. Þarna hefði verið betra að tala um útivistarfólk, fólk,sem stundar útivist. Yfirmenn í Efstaleiti eiga að brýna fyrir dagskrárgerðarfólki að forðast slettur og tala vandað mál. Það hlýtur málfarsráðunautur einnig að gera.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
3 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
08/09/2015 at 10:52 (UTC 0)
Rétt Guðjón Ingi. Mína vitneskju hafði ég frá íslenskufræðingi, en orðabókin segir heimildarmynd. Rökstyðja má hvort tveggja.
Guðjón Ingi Guðjónsson skrifar:
08/09/2015 at 10:20 (UTC 0)
Sæll. Ég vann á lesaradeild Morgunblaðsins árið 1999 (minnir mig). Þar var stefnan að hafa r-ið í heimildarmynd. Hugsunin var sú að myndin væri kölluð heimildarmynd af því hún væri heimild (ekki að hún byggði á heimildum, þótt það hafi eflaust verið tilfellið oftastnær). Það er sjónarmið og mér sýnist það í samræmi við hugsunina í útskýringu í orðabók, þ.e. mynd sem er heimild um eitthvað.
Kristján skrifar:
07/09/2015 at 14:18 (UTC 0)
Gaman að fylgjast með körfuboltalandsliðinu á EM.
Í leiknum gegn Ítölum var hluti leiksins sýndur án þess að einhver væri að lýsa því sem fyrir augu bar. Þetta var vegna bilunar. Þá jók ég við hljóðstyrkinn og naut þess að vera laus við lélega íþróttalýsingu. Upplifði næstum eins og ég væri staddur í sjálfri íþróttahöllinni meðal áhorfenda.
Er ekki sú tækni til, sem gæti boðið fólki upp á að horfa á kappleiki án lýsingar en þó með fullum hljóðstyrk frá vettvangi ?