EFTIR AÐ ….
Molavin skrifaði (15.03.2016): „Tveir lögreglumenn særðust, annar þeirra alvarlega, eftir að hafa fengið skot í höfuðið.“ Úr frétt á mbl.is 15.3.2016. Ætli þeir hafi ekki særst ÞEGAR þeir fengu skot í höfuðið. Varla löngu síðar. Þessi „eftir-plagsiður“ fréttaskrifara er nýlunda en sést ótrúlega víða. Hugsunarleysi og eftirlitsleysi fara því miður víða saman á fjölmiðlum. “ Rétt athugað, Molavin. Þakka bréfið.
SLÖK SKILTAGERÐ
H.H. sendi Molaskrifara línu og mynd af skilti frá Mathúsinu í Flugstöðinni. Á skiltinu stendur á ensku: ,,Please use the baking paper while you grill your sandwich”. Látum þetta nú vera, þótt betur færi ef til vill á að segja : Please use the baking paper when grilling your sandwich”. En íslenski textinn er ekki traustvekjandi: Hann er svona: ,, Notið bökunarpappír þegar grillað er samlokunar” Ótrúlegt en satt. Það þyrfti mikið til að Molaskrifari hefði lyst á samloku frá þessu fyrirtæki.
AÐ KVEÐJA SÉR HLJÓÐS
Að kveðja sér hljóðs er að biðja um orðið, taka til máls. Í frétt á visir.is (15.03.20116) segir, að þingmaður hafði brugðist illa við svörum fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi. Í fréttinni segir: ,,Þetta gerði hann á þingi í dag eftir að hafa kveðið sér hljóðs um fundarstjórn forseta.” Eftir að hafa kvatt sér hljóðs hefði þetta átt að vera að mati og samkvæmt máltilfinningu Molaskrifara. http://www.visir.is/kristjan-gerir–mjog-alvarlega-athugasemdir–vid-svar-bjarna-um-borgunarmalid/article/2016160319177
URÐU VARIR VIÐ SKOTHVELLI
Í frétt á mbl.is (15.03.2015) segir,, Lögreglumenn hafi þá orðið varir við skothvelli sem virtust koma frá fiskihjöllum þar skammt frá. “ Urðu varir við skothvelli? Heyrðu skothvelli , hefði maður haldið að þetta ætti að vera. Svo voru þetta ekki fiskihjallar. Þetta voru trönur , – um það segir orðabókin, – trönur -trégrindakerfi til að þurrka, herða fisk á. Hjallur er allt annað, – í málvitund Molaskrifara. Í Þórshöfn í Færeyjum var hann svo lánsamur að búa um skeið í húsi þar sem var hjallur. Húsið var ekki neinn hjallur, en kalda geymslan var hjallur. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/03/15/oskudu_sersveitar_vegna_hvellbyssna/
Bóndi austur í sveitum,sem notað hefur svona gashvelltæki til að fæla álftir og gæsir af ökrum og túnum, segir Molaskrifara að það taki fuglana bara nokkra daga að venjast hvellunum. Svo halda þeir bara áfram að éta og skemma tún og akra.
GÓÐ DAGSKRÁRGERÐ?
Er það góð dagskrárgerð að senda út danska þætti um kökubakstur (Det søde liv) á besta tíma kvölds eins og Ríkisjónvarpið gerði á þriðjudagskvöld (15.03.2016)? Nei. Það finnst skrifara ekki. Það er stundum eins og markvisst sé verið að hrekja stóra hópa frá Ríkisskjánum. Kökuþættir geta svo sem verið í lagi, – en ekki á besta tíma kvölds.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
Skildu eftir svar