ENSKAN ENN – HONEY MUSTARD !
Molaskrifari fór í matvöruverslun að kaupa sinnep, sem ekki er í frásögur færandi. Þar var úr mörgu að velja. Meðal annars var þar á boðstólum …. Alveg ekta Honey Mustard . Þetta var ekki erlend framleiðsla. Þetta var frá Akureyri. Framleiðandinn var M&M, Matur & Mörk, Frostagötu 3c, Akureyri. Íslenskt fyrirtæki að framleiða vörur fyrir Íslendinga og býr til enskt vöruheiti! Hvað er að því að kalla þetta Hunangs sinnep ? – Það skilja það örugglega fleiri en enska heitið.
FÓLK HEFUR …
Úr fréttum Stöðvar tvö (18.12.2016: ,, Forystufólk stjórnmálaflokkanna, sem sæti eiga á Alþingi, hafa undanfarna daga rætt óformlega um myndun nýrrar ríkisstjórnar.“ Forystu fólk ….hafa ekki .. Forystu fólk … hefur, á þetta að vera. Annað væri, forystumenn hafa rætt um …
EKKI TIL FYRIRMYNDAR
Þetta er af mbl.is (16.12.2016): Við ætlum ekki að fullyrða um hvort þetta starti nýju trendi eða hvort fólk haldi sig í skefjum. Ekki er hægt að segja að þetta málfar sé mbl.is til sóna eða til fyrirmyndar. http://www.mbl.is/folk/frettir/2016/12/15/osmekkleg_olettutilkynning_eda_stormandi_lukka/
GLUGGINN OPNAR
,, … þegar félagaglugginn opnar.“, var sagt í kvöldfréttum Ríkisútvarps (16.12.2016). Félagaglugginn svokallaði opnar hvorki eitt né neitt. Hann opnast eða er opnaður.
HÖFRUNGUR ÞRJÚ
Ómar sendi Molum línu og benti á að í fréttum Ríkisútvarps af sjómannaverkfalli (15.12.2016) hefði verið talað um fiskiskipið Höfrung þrjú, en ekki Höfrung þriðja, eins og rétt hefði verið. Þakka ábendinguna. Undarleg villa. Hugsunarleysi.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com . Eða einkaskilaboð á fasbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
Skildu eftir svar