að sá góði árangur,sem náðist með samstarfi fjölmargra aðila, þegar tókst að hafa hendur í hári stórglæpamanna,sem voru að smygla eiturlyfjum til landsins, sé að hluta til að þakka markvissri eflingu lögreglu og landhelgisgæslu undanfarin misseri.
Úr herbúðum sumra hafa verið rekin upp ramakvein, þegar gripið hefur til aðgerða til að styrkja sérsveit lögreglunnar og efla búnað hennar .
Atburðirnir fyrir austan færa okkur heim sanninn um það ,að við þurfum vaskar og velbúnar sveitir,- varnarlið gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi.
Lögreglan hefur reyndar ærin verkefni meðal annars við að hafa hemil á því hyski sem hertekur miðborg Reykjavíkur helgi eftir helgi. Þar dugir engin linkind. Vonandi hefur hún þar erindi sem erfiði.
Skildu eftir svar