«

»

Kryddsíld og kennitöluflakk

Kryddsíld Stöðvar tvö er hætt að kitla bragðlaukana með  sama hætti og áður. Kryddið hefur  svolítið dofnað, annars fórst Heimi Má  stjórnin  ágætlega úr hendi.  Það var með ólíkindum að annars ágætur  fréttamaður, Lóa Pind  Aldísardóttir  skyldi kalla til  sem álitsgjafa lögfræðing  sem komist hefur í fréttir vegna  kennitöluflakks. Hann var óspar á  fordæmingar , en  fréttamaður vék ekki einu orðið að kennitöluflakkinu. Það  .þykir kannski   tilheyra eðlilegum viðskiptaháttum.   Líklega hefur ýmsum áhorfendum  verið misboðið með þessu háttalagi.

 Talsmenn stjórnarandstöðunnar töluðu eins og þeir væru enn í Icesave umræðunum á  Alþingi. Vonandi taka stjórnmálamenn til  sín það sem Margrétt Kristmannsdóttir  í Pfaff sagði:  Verið ekki  svona leiðinlegir á  komandi ári.

 Gleðilegt og skemmtilegt ár !

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>