«

»

Molar um málfar og miðla 266

 Athyglisverð  viðtöl voru flutt í morgunþætti Rásar tvö (03.03.2010) um Herbalife,sem kallað er  fæðubótarefni. Annarsvegar var rætt við  rólegan og yfirvegaðan prófessor, sem ásamt   fleiri læknum  hefur rannsakað aukaverkanir Herbalife.  Hinsvegar var rætt við óðamála, og allt að því dónalegan, höfuðpaur Herbalife innflutnings. Aldeilis dæmalaust.  Þessi  tvö  viðtöl  mundu henta  vel  sem  dæmi í kennslu í  fjölmiðlun. Spyrjendur stóðu sig ágætlega.

 Á Stöð tvö er verið að ginna  fermingarbörn og freista þeirra til að taka þátt í einhverskonar leik og vinna sér inn fé  eða  vöruúttekt. Stöð tvö segir: Auk þess verða  hundrað heppin börn  dregin út.  Það er ekki öfundsvert eða  eftirsóknarvert að verða dreginn út. Það sem við er átt er að nöfn hundrað fermingarbarna  verða  dregin út.

  Í kvikmyndaauglýsingu á  Stöð  tvö ( 26.02.2010) var  svona tekið  til orða: Þarna ertu   enn að dreyma um… Betra  hefði verið að segja: Þarna er þig  enn að dreyma  um, – því ég er ekki að  dreyma um.. heldur er mig að dreyma um,…. að málfar í íslenskum fjölmiðlum  fari batnandi.

  Í fréttum Stöðvar tvö (03.03.2010) var talað um að fella niður höfuðstóla.  Orðið  höfuðstóll er ekki  til í fleirtölu. Því er rangt að tala um höfuðstóla.

  Það leynir sér ekki að  breyting á  eðlilegri orðaröð  er að læðast inn í íslenskuna   úr ensku. Eftirfarandi   þrjú dæmi eru úr nýlegum auglýsingum:   … fyrir  þína húð, … komin í þína lúgu…. við  smíðum þínar innréttingar.. Þarftu viðhald á þinni fasteign ?  Dæmin eru örugglega fleiri. Ekki er þetta breyting  til bóta.

 Sjónvarpsstöðvarnar hafa sérfræðinga til að  flytja fréttir að formúlukappakstri, svokölluðum.    Þeim er ýmislegt annað betur gefið en að vanda málfar sitt. Sérfræðingur  Stöðvar tvö  sagði (02.03.2010).  Mótshaldið hefst.  Mótið hefst, hefði   verið betra að segja.

 Í mbl.is  (27.02.2010)  var fjallað um  jarðskjálftana í Síle og minnst á íslenskt fyrirtæki  sem er með starfsemi þar. Netmiðill Moggans  segir: … sem er með  útgerð og fiskvinnslu á vesturströnd Síle. Muni Molaskrifari  rétt, á  Síle aðeins land  að sjó  til vesturs.

Hin tuttugu ára gamla Yasmine Judge, hefur verið vikið tímabundið úr starfi sínu á leikskóla.. Eins og  svo oft áður, hroðvirkni eða vankunnátta? visir.is (03.03.2010).   Hér átti auðvitað að standa : Hinni tvítugu Yasmine Judge hefur verið vikið….

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>