«

»

Molar um málfar og miðla 271

Í heilsíðuauglýsingu  (DV 15.03.2010)  frá Samtökum verslunar og þjónustu og  VR segir  stórum  stöfum:  Þú spilar stórt hlutverk. Þetta er ekki góð íslenska. Þetta er heldur vond prentsmiðjudanska. Danir tala um að spille en rolle, ef dönskukunnáttan ekki bregst  Molaskrifara.  Á íslensku  tölum við um að leika hlutverk. Enn eitt  dæmi málspjöll auglýsingafólks.  Fjöldasamtök, eins og SVÞ og VR,u  eiga að hafa metnað og sómatilfinning til að leggjaekki  nafn sitt  við svona auglýsingar.

Á mbl.is var (13.03.2010)  frétt um um viðræður  Rússa og Bandaríkjamanna. Þar er  þetta að finna: ..eru nálægt því að ná samkomulagi um afvopnun kjarnavopna… Þá hlýtur að vakna  spurningin: Hvernig  vopn séu afvopnuð?

Á dv.is var (13.03.2010)  frétt um  hnignun Detroit borgar í  Bandaríkjunum. Þar segir meðal annars: Nú er sá tími liðinn og borgin aðeins skugginn af sjálfum sér.  Rétt hefði verið að segja að  borgin væri sem skuggi af sjálfri sér.  Fréttin er með endemum illa skrifuð og  ættu ritstjórar að taka þann sem þar hélt á penna  rækilega til bæna.

 Um fréttamat  og efnisröðun  fjölmiðla má endalaust  deila. Molaskrifara fannst sérkennilegt að  Morgunblaðið  skyldi helga forsíðu sunnudagsblaðsins (14.03.2010) poppsöngvara, þegar margt annað áhugaverðara efni var í blaðinu. Nefnir Molaskrifari þar sérstaklega   viðtal við Erling Sigurðarson og eiginkonu hans Sigríði Stefánsdóttur. Erlingur  er þjóðkunnur af  þátttöku sinni í  Útsvari, en  hann  er haldinn Parkinson veiki. Viðtalið við þau hjón  fannst Molaskrifara þúsund sinnum áhugaverðara en spjallið  við popparann. En  svo er margt sinnið sem skinnið. Hinsvegar  sýndi það ágæta kímnigáfu hjá Útvarpi Sögu (16.03.2010) að telja  það eina aðalfrétt dagsins snemma í morgun  að þessi  fertugi poppari  hefði ekki áhuga á að verða  forseti Íslands !  Stóð honum, það til boða? 

 Ekki var  Molaskrifari sáttur  við  er talað var um að koma líki fyrir kattarnef í  fréttum Stöðvar tvö (13.03.2010). Líklega stenst þetta þó skoðun, því í Merg  málsins eftir   Jón G. Friðjónsson   merkir   að  koma  einhverju  fyrir kattarnef  að útrýma e-u, farga e-u eða losa sig endanlega við e-ð. Fróðlegt væri að heyra hvað öðrum finnst um þetta.

 Fyrirtækið  Dressman auglýsir:  Taktu  þrjár. Borgaðu tvær. Molaskrifara finnst að   frekar ætti að segja: Taktu þrennt. Borgaðu tvennt.  Það er eins og átt sé við: Taktu þrjár vörur. Borgaðu tvær vörur, – sem er auðvitað málleysa.

 Í  fréttum RÚV (13.03.2010) talaði borgarstjórinn í Reykjavík um að  reka  þjónustu. Ekki getur það talist  gott  orðalag. Betra  væri að tala um að veita þjónustu eða  annast þjónustu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>