«

»

Molar um málfar og miðla 276

Fín frammistaða hjá Fréttastofu RÚV á Fimmvörðuhálsi og þar í grennd   (24.-25.  03.2010).Stórkostlegar myndir. Liggur við að gamall fréttafiðringur taki sig upp.  Frammistaða Stöðvar tvö hefur  og verið með miklum ágætum, þótt þar sé fréttaliðið langtum fámennara. Kristján Már Unnarsson  stendur  fyrir sínu. Margra fréttamanna maki.

  Formaður þingflokks VG  lét sér sæma að sletta ensku í ræðustóli þingsins (25.03.2010) er hún  sagði: Það er gott að vera gay á Íslandi.   Það er ekki von  til þess að almenningur beri virðingu fyrir Alþingi, þegar þingmenn gera það ekki.

Góð fyrirsögn á visir.is (25.03.2010): Dauðadæmdur fékk gálgafrest.  Aftöku manns, sem  dæmdur hafði verið til dauða var frestað.

Glöggur lesandi benti Molaskrifara á eindálk í Morgunblaðinu laugardaginn 20. 03.2010 undir fyrirsögninni: Kemur Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn til bjargar? Verið var að fjalla um efnahagskreppuna í Grikklandi.  Í þessum  stutta  texta  eru málvillur/prentvillur með ólíkindum margar. Dæmi: Í þessu samhengi verður að hafa í huga að vextir  á neyðarlánum til grískra stjórnvalda myndi aðeins bera 3.25% vexti… Eins og Papandreou hefur  bent á í sjálfur þá standa stjórnvöld nú yfir  aðhaldsaðgerðum…  Það sem Grikkjunum vantar því eru lánin….. mögulegt getuleysi  ESB og  evrusvæðisins við að leysa úr skuldavanda gríska ríkisins  grafa enn frekar undir trúverðugleika myntsamstarfsisn… þó svo  að hann sé í flestum tilfellum að ólíkri stærðargráðu.. en hinsvegar mundi  sú lausn að öllu  óbreytt…   Halló Moggi. Hvað er  að? Eitthvað mikið greinilega.  Hvar eru síurnar?Þetta er  ekki boðlegt.  

 Í fréttum Stöðvar tvö (22.03.2010) var sagt að Alþingi hefði sett lögbann á verkfall flugvirkja.  Sama  sagði  Kastljósskona, þegar hún kynnti efni Kastljóss í kvöldfréttum RÚV sjónvarps. Alþingi samþykkti lög   þar sem kjarasamningur  flugvirkja var  framlengdur  og verkfall þeirra þar með  gert ólöglegt eða bannað, ef menn vilja  orða það svo. Lögbann er  hinsvegar allt annað og það ættu  fréttamenn að vita. Í Íslenskri orðabók segir um lögbann á bls. 945: Bann  sem gerðarbeiðandi  fær yfirvald til að  leggja á byrjaða eða yfirvofandi athöfn,sem hann telur að muni raska rétti sínum. Setning  laga og  lögbann  er tvennt óskylt. Ritstjóri  Kastljóss þarf greinilega að lesa yfir textann, sem sumir fara með á skjánum.

 Fallegt orð jarðeldur en í því getur falist  ógn og eyðing. Góðar fyrirsagnir (22.03.2010) í Morgunblaði , Jarðeldar milli jökla og Fréttablaði, Jarðeldur milli jökla.  Þótt aðeins sé  blæbrigðamunur á, finnst Molaskrifara  eintölumyndin fallegri.

     Í morgunfréttum og morgunþáttum   RÚV (22.03.2010)  var sagt frá eldgosinu í Fimmvörðuhálsi. Bæði þar og  á vef RÚV  var talað um bólstra. Á vef RÚV  segir: Eldgosið í Fimmvörðuhálsi er að breytast, bólstri reis upp frá sprungunni, klukkan stundarfjórðung yfir sjö og bólstrinn nær í um fjögurra kílómetra hæð. Sama var uppi á teningnum í dv.is. Þar sagði: Stór og mikill bólstri reis upp frá sprungunni á Fimmvörðuhálsi í morgun sem náði í um fjögurra kílómetra hæð. Ekki hefur Molaskrifara tekist að  finna orðið  bólstri í tiltækum  orðabókum og  ekki finnst það í beygingalýsingu íslensks máls.

    Stundum má heyra íþróttafréttamenn tala um að taka þátt á móti. (RÚV sjónvarp 22.03.2010). Menn taka þátt í móti ,ekki á móti.  Íþróttafréttamenn eru Molaskrifara óþrjótandi uppspretta athugasemda.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>