Ekki er að sjá að nein önnur norræn sjónvarpsstöð hafi notað tvær og hálfa klukkustund á laugardagskvöldi, á besta tíma, undir boltaleik og fótboltafjas eins og sjónvarp ríkisins á Íslandi gerði (10.07.2010). Samt gátu snillingarnir ekki haldið sig innan tímaramma dagskrár. Á hinum Norðurlöndunum hafa sjónvarpsstöðvarnar víðari sjóndeildarhring. Þar hafa menn heldur ekki auglýsingadeildir sem stjórna dagskránni og íþróttadeildirnar eru greinilega valdaminni en á Íslandi. Sem betur fer sér nú fyrir endann á þessari linnulausu og kostnaðarsömu misnotkun á Ríkissjónvarpinu. En í dag fær íslenska þjóðin þriggja klukkustunda fótboltaskammt,ef auglýstri dagskrá verður fylgt og leikurinn ekki framlengdur. Það er margfalt Norðurlandamet. Að sjálfsögðu á að sýna leikinn, – bara tuðinu. Hvað skyldi tuðið annars kosta? Hef grun um að það sé ekki ódýrt.
Ríkissjónvarpið hefði getað sparað umtalsvert fé, ef það hefði farið svipaða leið og aðrar norrænar stöðvar. Sparnaðinn hefði mátt nota í innlenda dagskrárgerð og til að kaupa vandaðra erlent efni. Það hefði mátt spara með því að sýna langtum færri leiki framan af, meðan þetta var ekkert spennandi, einn á dag hefði verið meira en nóg og með því að sleppa fjasi vitringanna að mestu.
Á mbl. is (09.07.2010) segir í fyrirsögn: Nær allar auglýsingar í Fréttablaðinu. Svo segir í fréttinni: Á fyrri hluta þessa árs keyptu fyrirtæki í eigu Haga ígildi 396 heilsíðna af auglýsingum í dagblöðum. Af þeim voru 383, eða 97%, í Fréttablaðinu, en 13, eða 3%, í Morgunblaðinu.
Á fyrri hluta síðustu aldar, þegar Finnbogi Rútur Valdimarsson var ritstjóri Alþýðublaðsins voru Morgunblaðið og Alþýðublaðið álíka stór blöð. Þá var Alþýðublaðið brautryðjandi í nútíma blaðamennsku. Svo keyptu kaupmenn Morgunblaðið og beindu nær öllum sínum auglýsingum þangað. Þá byrjaði upplag Alþýðublaðsins að minnka en Mogga fór að vaxa fiskur um hrygg.
Að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa Keflavíkurflugvallar, kemur atvik sem þetta reglulega upp.(visir.is 08.07.2010). Ekki verður sagt að snilldarblær sé á þessari setningu úr frétt þeirra Vísismanna.
Úr mbl.is (08.07.2010): Tilboðið var skriflegt og hljóðaði upp á nákvæmlega 8.819 blaðsíður. Líklega er hægt að segja að tilboð hljóði upp á tiltekna upphæð, en tilboð getur aldrei hljóðað upp á blaðsíður eins og Netmoggi segir. Þá ætti að vera óþarfi að taka fram að tilboð í smíði 179 flugvéla hafi verið skriflegt ! En það er auðvitað gott að gera ráð fyrir því að hugsun lesenda sé ekki alltof skýr.
Leiðari Morgunblaðsins (10.07.2010) Sko dómstólana, er tær snilld, svo notuð séu fleyg orð. Það er sjaldgæft að leiðarar séu svona skemmtilegir.
Í DV (09.07.2010) segir enn einu sinni frá íslenskri fyrirsætu,sem býr í Búlgaríu, en er að flytjast til Þýskalands. Mér líst ágætlega á þetta allt saman enda er Munich flott borg ……., segir fyrirsætan. Molaskrifari vonar að hún finni borg með þessu nafni í Þýskalandi.
Í frétt á dv.is segir (09.07.2010): Mikinn gufustrók stendur upp úr eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Hér ætti annað hvort að standa: Mikinn gufustrók leggur nú upp úr eldstöðinni…. eða: Mikill gufustrókur stendur nú upp úr eldstöðinni….
Þegar málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins var að setja ofan í við Molaskrifara í grein í Fréttablaðinu á dögunum, sagði hann meðal annars um þessi skrif: ..og þar eru sömu atriðin nefnd aftur og aftur. Þetta er rétt athugað. Glöggur maður, málfarsráðunauturinn. Sömu atriðin eru hér nefnd aftur og aftur í þeirri traustu trú að dropinn holi steininn.

Skildu eftir svar