Svolítið villandi fyrirsögn var í mbl. is (21.09.2010) 100 ár síðan kona var tekin af lífi í Virginíu. Þegar fréttin er lesin, kemur í ljós, að fyrirhugað er að taka konu af lífi í Virginíu, en kona var síðast tekin af lífi þar fyrir hundrað árum. Fyrirsögnin var ekki röng, en horft var framhjá aðalefni fréttarinnar. Í fréttinni segir ennfremur: ….og hafi verið undir sterkum áhrifum frá sér klárari fólki þegar morðin, sem hún var dæmd fyrir, voru framin. . Áhrifum frá sér klárara fólki ,væri betra, en ekki gott.
Úr íþróttafréttum mbl.is (20.09.2010): Hvað gerðist í þessu atviki?„Þetta kallast að lesa leikinn, það gerði ég en ekki dómarinn. Boltinn datt fyrir framan mig og það koma tveir varnarmenn á fullri ferð í mig…. Það var og.
Aðfaranótt þriðjudags (21.09.2010) heyrði Molaskrifari brot úr endurteknu viðtali, (öllu fremur eintali Ólafs) við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands í Útvarpi Sögu. Í þeim stutta kafla,sem Molaskrifari hlustaði á voru mýmargar staðreyndavillur. Ólafur fór ekki einu sinni rétt með árið,sem hann fór í opinbera heimsókn til Kína. Það var 2005 ekki 2006. Það er líka rangt að allir sem komi til Peking fái særindi í háls og nef vegna mengunar. Staðreyndir hafa aldrei staðið Ólafi Ragnari fyrir þrifum. Stjórnendur vissu ekkert í sinn haus. Það rifjaðist upp við að hlusta á þetta, að árið 2005 hafði Ólafur Ragnar ekki áhuga á að heimsækja Xianiang þar sem unnið var að hitaveituframkvæmdum á vegum Íslendinga. En þá var Ólafur Ragnar heldur ekki búinn að finna upp hitaveituna.
Hausthreingerningar standa yfir í Útvarpi Sögu , því samkvæmt því sem segir í Fréttablaðinu er bæði búið að reka Sigurð G. Tómasson og Önnu Kristine Magnúsdóttur, — með SMS símaskilaboðum !
Nú orðið kynnir Molaskrifari sér fyrst efni norrænu sjónvarpsstöðvanna í Mogga, áður en hann lítur á dagskrá Ríkissjónvarpsins. Það er þó tilhlökkunarefni að horfa á Kilju Egils í kvöld.
Skildu eftir svar