«

»

Molar um málfar og miðla 413

Þrátt fyrir allt leynist ýmislegt gott innan um  íhalds- og afturhaldsbullið á ÍNN.  Ingvi Hrafn sagði hlýlega og  fallega frá erfiðum veikindum  Jóns Arnar bróður síns, sem  býr ásamt  fjölskyldu  sinni í Regina Sask.  í Kanada. Þetta var vel gert ,Ingvi Hrafn, og snart alla, sem þekkja þetta góða fólk. Vonandi fær  Jón Örn  góðan bata. Við Eygló nutum gistivináttu þessara sæmdarhjóna á sínum tíma Í Regina. Það voru góðar stundir.

 Hláleg málvilla er í frétt í mbl.is (24.09.20010). Þar segir:  Árni Páll fór erlendis í morgun.  Menn  fara utan. Menn eru erlendis. Menn fara ekki erlendis. Hefur  einhver heyrt talað um að fara hérlendis ?  Moggi, Moggi, hvar ertu staddur ? 

   Í  þáttum  Péturs Gunnlaugssonar í Útvarpi Sögu  Línan er laus,er  orðið   stjórnmálastéttin nefnt að meðaltali á   fimm mínútna fresti.  Í því felst alltaf  lítillækkun þeirra sem komið hafa að stjórnmálum.  Í þessum þætti var nýlega talað um karakterheimsku. Það er reyndar   einkar lýsandi orð.

Embættismaður myrtur í New York,  segir í fyrirsögn fréttar í mbl.is (24.09.2010). Fyrirsögnin er ekki röng, en hefði mátt vera skýrari. Það var erlendur sendimaður,sem var myrtur í New York. Það kemur fram í fréttinni.

 Það er til marks um sagnfræðilegt meðvitundarleysi þeirra sem halda um stjórnvölinn í Ríkissjónvarpinu í Efstaleiti ,að ekki  skuli sýndir einhverjir af þeim tugum  heimildamynda, sem norrænu sjóvarsstöðvarnar sýna frá árum heimsstyrjaldarinnar síðari.  Þessa þætti er áreiðanlega hægt að  fá á viðlíka verði og amerísku drauga-  og dellumyndirnar sem okkur er sífellt boðið að horfa á. Um hvað er þetta lið að hugsa ?   Líklega er það ekki að hugsa.

  Á sunnudagskvöld , samkvæmt  boðaðri dagskrár  norska  sjónvarpsins NRK 2 gefst kostur á að hlýða á  kínverska píanósnillinginn Yundi Li Hann veldur ekki vonbrigðum. Menningarmiðstöðin í Efstaleiti í Reykjavík  býður þjóðinni upp á  hvað á þessum sama tíma ?  Fótbolta. Hvað annað  !

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>