Auglýsingastofur, stórfyrirtæki og nokkur veitingahús hafa að undanförnu lagst á eitt að troða slettum inn í málið. Þessar slettur eru tax-free dagar (Þegar veittur er afsláttur ,sem nemur virðisaukaskattsprósentunni), outlet (einskonar verksmiðjuútsala) og bruns eða bröns(veglegur hádegisverður, oftast á laugardegi eða sunnudegi, blanda úr ensku orðunum breakfast og lunch). Þessir aðilar eru að vinna óþurftarverk með skipulagðri málmengun.
Mjög góður Tungutakspistill Baldurs Sigurðssonar, Orðfæðarstefnan, í Sunnudagsmogga.
Að lausn væri að vænta, – sagði fréttamaður Ríkisútvarpsins í sexfréttum (26.11.2010). Hefði átt að segja að lausnar væri að vænta. Sami fréttamaður sagði: .. til handa skuldavanda heimilanna. Ekki gott orðalag.
Úr mbl.is (27.11.2010): Ríkasti maður Indlands, milljarðamæringurinn Mukesh Ambani, hélt nýverið innflutningsveislu á nýbyggðu heimili sínu, sem er talið vera það stærsta – og dýrasta – í heimi. Það er ekki íslensk málvenja að tala um að byggja heimili. Fólk byggir hús, en stofnar heimili. Innflutningsveisla. Það var og.
Nokkrum þraut þolinmæði,sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (26.11.2010). Molaskrifari er á því að betra hefði verið: Nokkra þraut þolinmæði… verið var að segja frá biðröðum við utankjörfundaratkvæðagreiðslu í Reykjavík.
Morgunblaðið er nú í brúarvinnu. Það er að byggja brýr til VG. Blaðið kemur Jóni Bjarnasyni ráðherra hraustlega til varnar í leiðara vegna ómaklegra persónulegra árása. Þingmaður VG Atli Gíslason fær svo drottningarplássið í leiðaraopnunni, – miðjuna úr hægri síðunni. Undir hvað? Undir grein sem harkaleg árás á ESB. Ja, hérna.
Skondin er auglýsing veitingastaðarins Thai A á Akranesi í Útvarpi Sögu um taílenskt jólaborð!. 0.7% íbúa Thailands eru kristinnar trúar og halda væntanlega heilög jól . Rúmlega 94% eru Búddistar og 5% Múslímar. Þeir vita varla hvað jól eru. Þetta minnir á þegar veitingastaður auglýsti kínverskt jólaborð ! Þeir sem þekktu kokkinn höfðu vit á að borða heldur heima.
Ríkisútvarpið þrjóskast við að kalla Hringekjuna á laugardagskvöldum skemmtiþátt. Það er hún ekki.
Eftir fréttum að dæma er meginhlutverk sumra upplýsingafulltrúa í stjórnarráðinu að láta fjölmiðla alls ekki ná til sín. Það eru auðvitað upplýsingar líka.
Skildu eftir svar