Í fréttum Ríkissjónvarpsins á kjördag (27.11.2010) var rætt við formann landskjörstjórnar, sem fréttamaður kallaði yfirmann landskjörstjórnar. Hvernig hefur þetta verið svona heilt yfir spurði fréttamaður formanninn. Heilt yfir? Það var líka einkar ófaglegt að ætlast til þess að formaður landskjörstjórnar lýsti vonbrigðum með dræma kosningaþátttöku. Fréttamaður sem segir: Dáldil traffík og misjafnt er hvenær kjörstöðum lokar , þarf meiri þjálfun áður hann er settur á skjáinn og sendur inn í stofu til okkar.
Þeir sem ætla að hlusta á fréttir í Ríkisútvarpinu klukkan 17 00 á laugardögum grípa í tómt. Fréttastofu ríkisins þóknast ekki að hafa fréttir þá eins og virka daga. Þá er bara að hlusta á Bylgjuna. Þar eru fimmfréttir á laugardögum.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á að fækka um 96 starfsmenn sem nemur 69 starfsmönnum á St. Jósefsspítala. Skilur einhver þetta? Tilvitnunin er úr grein eftir þingmann Framsóknarflokksins í Fréttablaðinu 27. 11.2010. Hér er svo setning úr dv.is (27.11.2010): „Kristkirkja á Íslandi ætlar ekki lengur að koma illa fram við hvort annað,“ sagði Símon Geir Geirsson, úr Fíladelfíukirkjunni… Aftur er spurt: Skilur einhver þetta?
Heimildamyndin Aldrei aftur, sem Ríkissjónvarpið sýndi á sunnudagskvöld (28.11.2010) var of löng. Þar var illa farið með áhugavert hráefni. Samhengi var stundum ábótavant, en ágætum tilþrifum brá fyrir, til dæmis viðtölum við gömlu konurnar á Guernsey, öllu heldur frásögnum þeirra. Það var áhrifamikið. Myndina hefði mátt stytta um allt að því helming eða gera tvær styttri myndir með betri klippingu og leikstjórn. Lokaatriðið á Þingvöllum hefur ekki verið ódýrt í uppsetningu og var meira en hallærislegt.
Skildu eftir svar