«

»

Molar um málfar og miðla 479

Dagskrá Ríkissjónvarpsins sunnudagskvöldið 5. desember var góð. ( Góð ,heilt yfir , ætti molaskrifari líklega  að segja  til að tolla í tískunni, en gerir ekki.).  Margt var  bitastætt í Landa  svo sem oftast er og  í mynd  þeirra Maríu Sigrúnar og Guðmundar Bergkvist um  hinn eina og  sanna Sólheima Reyni var  prýðilega tvinnað saman  gömlu efni og  nýju. Smekkvísi og góð tilfinning fyrir efninu  voru   þar ráðandi.  Svo  var líka gaman að sjá  gamla  skaupið hans  Flosa. Þar var mörg  góð  Flosafyndni, þótt ekki hafi allt staðist tímans tönn. Enda ekki við  því að búast um slíkt  stundargaman sem áramótskaup í eðli sínu er.

 Í frétt um aðgerðir vegna  skuldavanda heimilanna  tók fréttamaður Ríkisútvarpsins  (03.12.2010) svo til  orða: .. þúsundir einstaklinga og  fjölskyldur hafa þegar nýtt sér…  Hér  hefði að mati Molaskrifara farið betur á að segja: … þúsundir einstaklinga og  fjölskyldna  hafa  þegar nýtt sér… Það er að segja , hafi verið um svo margar fjölskyldur að ræða.  Sami fréttamaður  sagði …. er lagður  lokahnykkur á aðgerðir til lausnar…  Molaskrifari hefur  aldrei heyrt talað um  leggja lokahnykk á  eitthvað. Talað er um að leggja  lokahönd á eitthvað, þegar  verki er lokið.  Það eru síðustu handtökin við verkið.  Hinsvegar  mætti  segja til  dæmis: Lagning  bundna slitlagsins  var lokahnykkurinn á gerð vegarins yfir heiðina.

  Úr mb. is (04.12.2010): Tveir skipsverjar eru um borð í bátnum.  Ekki er  talað um skipsverja á íslensku, heldur  skipverja.

  Fjöldi umferðaróhappa hafa orðið, sagði fréttamaður  Ríkisútvarps  (04.12.2010). Betra hefði verið: Fjöldi umferðaróhappa hefur orðið. Karlkynsnafnorðið fjöldi er nefnilega aðeins til í eintölu. Umferðaróhöpp hafa orðið,   væri í góðu lagi samkvæmt  máltilfinningu Molaskrifara,sem auðvitað er ekki óbrigðul.

Í fréttayfirliti í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins  (05.12.2010) las fréttaþulur:  Rúmlega þriðji hver Dani langar ekki í neitt í jólagjöf. Þetta er ekki  rétt. Rétt hefði verið að segja: Rúmlega þriðja hvern Dana langar ekki í neitt í jólagjöf. Við segjum  ekki:  Ég langar, heldur  mig langar.   Líklega hafa menn áttað sig á því að þetta var ekki í lagi. Þessu var sleppt í   yfirlitinu í lok frétta.

Útvarpsstjóri, Útvarps Sögu, Arnþrúður Karlsdóttir hefur lýst því yfir í  einkaútvarpi sínu að svipta beri tiltekna  opinbera starfsmenn,sem komnir  eru á eftirlaun, málfrelsi og ritfrelsi. Þeir eiga að þegja, sagði hún oftar en einu sinni  í  endurteknum útvarpsþætti   skömmu fyrir klukkan sjö  að morgni mánudagsins  6. desember. Mikil  er lýðræðisástin þar á bæ.  Veita á Ólafi Ragnari  alræðisvald til að skipa utanþingsstjórn eða  neyðarstjórn og  svipta suma borgara landsins málfrelsi  og ritfrelsi, – þá sem segja eitthvað eða  birta eitthvað,sem útvarpsstjóranum er ekki að skapi. Kannski leggur fulltrúi Útvarps sögu á   Stjórnlagaþingi  til, að sett  verði ákvæði í nýja  stjórnarskrá um  að  aðeins sumir borgarar landsins  njóti  málfrelsis og ritfrelsis. Hver veit?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>