Fréttamönnum Ríkisútvarps fannst það fréttnæmt, að sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi skyldi fylgjast með mönnum og málefnum og ekki síst stjórnmálahorfum og þróun á Íslandi. Það er hlutverk sendiráða að vera augu og eyru lands síns í gistiríkinu. „Afla upplýsinga“ sagði Jón Baldvin fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra í Bandaríkjunum í Ríkisútvarpinu (06.12.2012)
Sendiherrar Íslands sendu til skamms tíma, og gera líklega enn, skýrslur ársfjórðungslega til utanríkisráðuneytisins í Reykjavík um stjórnmál og efnahagsmál í gistiríkinu. Ekki fer hjá því að í slíkum skýrslum sé vikið að samtölum við nafngreinda einstaklinga stjórnmálamenn og frammámenn í atvinnulífi og lagt mat á menn og málefni. Umfjöllun Ríkisútvarpsins um skýrslur bandaríska sendiráðsins í reykjavíki hefur á stundum verið einfeldningsleg , barnaleg og ekki borið vott um djúpstæða þekkingu. Svo var Jón Baldvin var sagður sendiherra Bandaríkjanna (!) í morgunútvarpi Rásar tvö (06.12.2010). Engum datt í hug að leiðrétta. Sama kurteisin við hlustendur.
Sagt var í morgunútvarpi Rásar tvö (06.12.2010), að Kínverjar hefðu stundað iðnaðarnjósnir á Íslandi. Hið rétta er að starfsmenn bandaríska sendiráðsins á Íslandi hafa haldið þessu fram. Ekkert slíkt liggur fyrir eða hefur verið sannað. Hér er ekki verið að bera blak af Kínverjum, heldur einungis benda á að enginn er sekur fyrr en sekt er sönnuð. Í þessu máli hefur sekt ekki verið sönnuð. Fjölmiðlamenn eru ekki dómarar í sakamálum.
Það fer hraðvaxandi um þessar mundir, að ung börn séu látin lesa auglýsingatexta. Ekki er gulltryggt að börnin skilji alltaf þann texta ,sem þeim er gert að fara með. Hvað segir Umboðsmaður barna? Hvað segir Barnaverndarstofa?
Í auglýsingaflóðinu þessa dagana eru fjölmargar nýjar auglýsingar í sjónvarpi. Þær eru auðvitað misjafnar að gæðum. Malt og appelsín auglýsingar Ölgerðarinnar eru fínar.Appelsín auglýsing Vífilfells er slök. Nú ætti Ölgerðin að birta stutta auglýsingu: Mynd af appelsínflösku og segja, – Varist eftirlíkingar !
Ein versta sjónvarpsauglýsingin, sem Molaskrifari hefur lengi séð, er um bók, sem Molaskrifara sýndist heita Vax-in. En það getur þó varla verið bókartitill. Molaskrifara hlýtur að hafa missýnst. Þar er sagt: Vilt þú vita hvað klæðir þínu vaxtarlagi ? Ömurlegt. Það er eins og allar síur, allt eftirlit, öll gagnrýni sé horfin að því er varðar auglýsingar í Ríkisútvarpinu. Þar má allt.
Skildu eftir svar