«

»

Molar um málfar og miðla 494

 Skrítnar eru  fyrirsagnir  á  fréttavef  Ríkisútvarpsins. Þar segir  til  dæmis :  Sólheimar til sátta. Í fréttinni  kemur fram að    deiluaðilar hafi orðið sammála um að vísa   Sólheimadeilunni til   sáttasemjara ríkisins. Ríkisútvarpið  kallar  þann ágæta embættismann  sem sagt sátta.   Önnur fyrirsögn og ekki betri  er á frétt um vafasama ( að ekki sé meira sagt) fjármálagjörninga í gamla Landsbankanum   dagana í kring um hrunið. Sú fyrirsögn er  svohljóðandi: Landsbanki tíser. Molaskrifari  játar, að hann skilur þetta ekki og  biður  málfarsráðunaut   Ríkisútvarpsins  vinsamlegast að  skýra  fyrir þeim sem fréttavefinn  lesa hvað þetta þýðir. Fréttavefur   Ríkisútvarpsins  er ekki vettvangur  fyrir innanhússlangur eða einkabrandara.

Molavin ,sem stundum gaukar góðum ábendingum að Molaskrifara, sendi eftirfarandi: „Þrátt fyrir margendurteknar ábendingar flaskar fréttastofa RUV enn í kvöld á embættisheiti næstráðandi embættismanns Bandaríkjaforseta. „White House Chief of Staff“ er ekki starfsmannastjóri forsetaembættisins. Því hlutverki gegnir rekstrarstjóri forsetaembættisins, en það embætti heitir á ensku: Office of the Chief Administrative Officer (OCAO). Ein af þremur skrifstofum hans fer með starfsmannamál og heitir sú Human Resources Management Division. Allt má þetta sjá á heimasíðu forsetaembættisins.
William Daley, sem í dag var kynntur til sögunnar sem æðsti embættismaður Bandaríkjaforseta, White House Chief of Staff, er í senn nánasti, pólitíski ráðgjafi forsetans og um leið sá embættismaður, sem stýrir rekstri Hvíta hússins. Það mætti hugsa sér að kalla hann forsetaritara, en starf hans er líka hliðstætt ráðuneytisstjórastarfi, því Bandaríkjaforseti er í raun forsætisráðherra landsins“.

 Allt er þetta rétt og hefur áður verið nefnt  í Molum, en   fréttastofa Ríkisútvarpsins situr við sinn keip og hamrar  á vitleysunni. Að kalla þennan embættismann starfsmannastjóra   Hvíta hússins er ekki hótinu betra en þegar Morgunblaðið uppgötvaði  merkan  hershöfðingja í seinni heimsstyrjöld. Hann hét að sögn blaðsins General Staff.

  Oft heyrist rangt farið með orðatiltækið  að bera gæfu til. Við bárum ekki gæfu til að  hlusta á  varnaðarorð  þeirra sem  vöruðu  við bankahruninu. Of oft  heyrist: Okkur bar ekki gæfu til , eins og   alþingismaður  sagði í útvarpi (06.01.2011). 

   Í leiðara Morgunblaðsins (06.01.2011) er ráðist á Siv  Friðleifsdóttur alþingismann fyrir  skort á fylgispekt við formann sinn. Morgunblaðið hefur þungar áhyggjur af ástandinu í öðrum flokkum. Ætti kannski að huga meira að sínum flokki. Menn verða ekki lengur hissa á því sem Morgunblaðið skrifar um stjórnmál. Blaðið er upp á kant við veröldina og veruleikann. Í Moggaleiðurum  er vitnað í slúðurvefinn AMX  og AMX slúðurvefurinn vitnar í Moggann. Þá  er umræðan  fullkomin, komin í hring og orðin  einskonar langavitleysa.

  Það er rétt hjá forstjóra  365 miðla, að handboltatilboð Ríkisútvarpsins til Stöðvar tvö  hljómar í eyrum flestra eins og  framhald áramótaskaupsins ( sem var að vísu býsna gott). Ríkisútvarpið er að reyna að tryggja eftir á.  Ráðamenn þar hafa líklega aldrei heyrt auglýsinguna ágætu: Þú tryggir ekki eftir á.
Gefa einkunina 1

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>