«

»

Molar um málfar og miðla 500

Athyglisverð ummæli voru á  forsíðu Fréttablaðsins á þriðjudag (11.01.2011). Þar var frá því að sagt, að tveir  listamenn, leikstjóri og leikari, Benedikt Erlingsson og Ólafur Egilsson,   ætluðu að gera  sjónvarpsþætti,  sjö þátta flokk, byggðan á Íslandsklukkunni. Þættirnir verða  boðnir  Stöð tvö. Benedikt  segir orðrétt við Fréttablaðið: „Við ætlum að sýna þættina á sjónvarpsstöð, sem sýnir leikið sjónvarpsefni. Það verður ekki  boltarásin – RÚV-  heldur verðum við að sýna á Stöð tvö, enda er það eina sjónvarpið sem stendur fyrir alvöru íslenskri dagskrárgerð“. Svo mörg  voru þau orð. Molaskrifari var þess  alltaf handviss að hann væri ekki einn um þá  skoðun ,að  búið  væri að breyta  Ríkissjónvarpinu í boltarás og , —  ameríska vídeóleigu.

  Það er undarleg meinloka hjá Ríkissjónvarpinu að kynna ekki  til sögunnar í dagskrárkynningum gesti ,sem koma í viðtalsþátt Þórhalls Gunnarssonar, Í návígi. Þetta skapar enga spennu hjá  áhorfendum. Bara pirring.

 Í miðnæturfréttum Ríkisútvarpsins (13.01.2011) var  sagt  að Kaupþing hefði átt Eik banka í Færeyjum. Þetta var endurtekið í   morgunfréttum. Þetta er  rangt.  Kaupþing hefur aldrei átt Eik banka. Eik banki er  elsta fjármálastofnun í Færeyjum (1832).  Eik banki  keypti rekstur Kaupþings í  Færeyjum 31. desember 2007. Léleg fjölmiðlun.Ótraust.

   Molaskrifari hefur stöku sinnum hlustað á kunningja sinn  Elís Poulsen í Færeyjum í morgunútvarpi Útvarps  Sögu. Í morgun (13.01.2011) var þar boðað  viðtal við hann klukkan hálf níu. Það hófst þegar klukkuna vantaði  tólf mínútur í níu. Kunna menn ekki á klukku  frekar  en hjá Ríkissjónvarpinu? Umsjónarmaður sagði líka, að í Færeyjum væri banki að fara á hliðina. Eik banki  fór á  hausinn í september og   stofnun í Danmörku (Finansiel Strabilitet) tók við rekstrinum. Nú er  hinsvegar  nýr aðili búinn að kaupa bankann, dótturfélag Tryggingafélags  Færeyja.  Svo skellir maður náttúrulega upp úr, þegar Íslendingur  spyr  fréttamann  færeyska útvarpsins: Hver er stærsti atvinnuvegurinn í  Færeyjum?     Þetta er léleg fjölmiðlun og ótraust  eins og  frá Efstaleitinu.  

 Ekki sá Molaskrifari betur, en að á  nokkuð sandblásnu aðvörunarskilti Siglingastofnunar við Landeyjahöfn stæði: Bílum sem lagt er svæðið eru þar á  á ábyrgð eigenda. Ætti að  vera: Bílar sem lagt er á svæðinu eru þar á ábyrgð eigenda.

 Í leiðara  Morgunblaðsins í morgun segir: „Villandi fréttaflutningur er á hinn bóginn ekki hjálplegur og er þvert á móti  til þess fallinn að  spilla umræðunni og afvegaleiða almenning“.Morgunblaðið hefur um langt skeið haft örugga forystu meðal íslenskra fjölmiðla  í  villandi  fréttaflutningi, í því  að villa um fyrir almenningi og  spilla umræðunni um  tvö  stórmál, ESB og Icesave. 

Es. Þessir Molar áttu aldrei að verða svona margir.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>