«

»

Molar um málfar og miðla 502

Jafnmikið regnvatn féll til jarðar… var sagt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins (13.01.2011). Betra hefði verið að segja: Jafnmikið rigndi.. eða, úrkoma var jafnmikil og …  Þetta með regnvatnið var svo endurtekið í  sjöfréttum Ríkissjónvarpsins, enda  er um að gera gjörnýta góðar setningar. „Regnið þungt   til foldar fellur, fyrir utan  gluggann minn“, segir í alkunnum fyrriparti.

  Fréttamaður   Stöðvar  tvö (13.01.2011) talaði ítrekað um  fræðamenn, þegar átt  var  við fræðimenn, eins og þulur réttilega sagði í inngangi fréttar.

  Molavin spyr: „Er nafnorðið *húsleit* til í fleirtölu? Svo virðist mega ætla, því allir fjölmiðlar landsins hafa í dag fjallað um „húsleitir“ vegna meintra brota yfirmanna í Landsbankanum, þeim gamla. Ég hef vanizt því að nota orðið í eintölu, og þá um húsleit á fleiri stöðum en einum ef svo bar undir. Síðustu daga hefur verið gerð leit að týndum manni – á mörgum stöðum, ekki leitir. Vonandi kemur hann þó í leitirnar.“  Molaskrifari telur Molavin hafa rétt fyrir sér um þetta sem og margt annað.

…og súrmaturinn hefur verið að lagast  í tvo til þrjá mánuði, sagði fréttamaður Ríkissjónvarps (13.01.2011).  Hann átti við að súrmaturinn hefði verið að verkast, taka í sig súrinn úr  sýrunni eða mysunni,sem hann er  látinn liggja í. En auðvitað má  segja sem svo að innmatur lagist við að verða settur í súr.

  Það er einstaklega hallærislegt að láta fréttamann norpa í kuldagalla  fyrir utan húsakynni Sérstaks  saksóknara  við Skúlagötu  og segja þaðan stuttar fréttir, eins og gert var í báðum fréttatímum Ríkissjónvarpsins (13.01.2011).  Þetta undirstrikar að í þessu tilviki  var meiri áhersla lögð á umbúðir  en innihald.

   Það vefst  dálítið  fyrir ráðamönnum að skýra  hversvegna þarf að leggja  á sérstaka vegatolla í viðbót  við vegaskatta sem við greiðum í  bensín- og olíuverði. Vegaskattana á bensín á að nota  til að kosta  vegaframkvæmdir. Það er ekki gert nema að litlu leyti,. Þeir renna beint í ríkishítina.  Hina almennu tekjuhít. Enda sagði  innanríkisráðherra, að þetta væru sértækar aðgerðir  vegna  sérstakra aðstæðna. Og   svo er ætlast til að við skiljum  þetta.  Ráðherrar eiga að tala mannamál.

    Fram kom í fréttum  Ríkissjónvarps (13.01.2011)að það sem einu sinni hét landlega   er nú kallað brælustopp. Landlega er reyndar  langtum fallegra orð.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>