«

»

Molar um málfar og miðla 522

Enn eitt  dæmið um villandi fréttaflutning Morgunblaðsins  var  á mbl.is (05.02.2011). Þar sagði í  myndatexta: Vilja þjóðaratkvæði. Yfir var mynd  af þeim Bjarna  Benediktssyni og Kristjáni Þór  Júlíussyni  þar sem þeir héldust í hendur og  fögnuðu  sigri. Í fréttinni kom fram, að  Kristján Þór   var fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslu  en Bjarni Benediktsson vildi ekki útiloka þjóðaratkvæðagreiðslu. Hálfsannleikur. Morgunblaðið  svífst nú einskis, ef það er talið málstaðnum til framdráttar. Sama lögmál  gilti í hinu gamla málgagni kommúnista, Þjóðviljanum. Ómerkileg vinnubrögð.

 Hinar heiftarlegu og forsæmislausu  árásir Morgunblaðsins á formann Sjálfstæðisflkokksins  fóru að mestu  framhjá  Ríkissjónvarpinu í gærkveldi (04.02.2011). Í Kastljósi var hinsvegar  ítarleg umfjöllun um landnámshænur og ágæti þeirra.

 Keyrði ölvuð á Klapparstíg, sagði í  fyrirsögn á mbl.is (04.02.2011). Það  hefur að líkindum verið  harður árekstur ! Skyldi Klapparstígur hafa beyglast?

Fréttavefurinn visir.is (04.02.2011): Lögreglan sagði í samtali við Vísi fyrr í kvöld að engin stórkostleg óhöpp hefðu orðið þrátt fyrir ófærðina.  Stórkostleg óhöpp?  Líklega var átt við alvarleg óhöpp.
Hvað lesum við næst? Stórkostlegt slys ?

 Heimsmeistaramót var framhaldið … sagði íþróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins (04.02.2011). Það er eins og  það hvarfli ekki að ráðamönnum í  Efstaleiti að  reyna að bæta málfar í íþróttafréttum Ríkisútvarpsins.

  Barnabarn  konunnar, sem lést fyrir tíu árum, en fékk áfram greiðslur frá  Tryggingastofnun  ríkisins, skrifar grein í Fréttablaðið (04.02.2011). Í greininni er fréttaflutningur  Ríkisútvarpsins af málinu gagnrýndur. Undir þá gagnrýni tekur  Molaskrifari. Fréttastofa ríkisins féll á enn einu  prófinu.  Birting  nafns  konu,  sem lést fyrir tíu árum var ástæðulaus. Enn ástæðulausara  var að tengja  konuna við   skáldsöguna  Djöflaeyjuna. Þetta   eru ámælisverð og afar einkennileg vinnubrögð. Hvernig í ósköpunum kom það fréttinni við að konan  væri   fyrirmynd  persónu í skáldsögu?   Enn eitt dæmið  um dómgreindarskortinn og stjórnleysið í Efstaleiti.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>