«

»

Molar um málfar og miðla 539

Í fréttum Stöðvar tvö var talað um, að tannlæknar  væru krafnir um. Hér hefði átt að segja, að tannlæknar væru krafðir um.  Eða þess  væri krafist, að tannlæknar….

  Beygingakerfið er á undanhaldi. Enn eitt  dæmið um  það var í mbl.is (23.02.2011): Ráðuneytið hefur náð samkomulagi við forsvarsmenn skólans um að nemendur sem hófu nám sl. haust verði gert kleift að ljúka námi sínu við skólann á vorönn 2012.  Hér átti auðvitað að segja:  … nemendum … verði gert  kleift…

 Dæmi um óþarfa þolmynd úr mbl.is (23.02.2011): Jón segir að fólkið sem komst inn í Túnis hafi verið rænt af mönnum í lögreglubúningum… Um  þetta þarf svo sem ekki að hafa mörg orð.

    Í Ríkissjónvarpinu var enn einu sinni sagt (22.02.2011): … frá því  forseti synjaði  lögunum.  Molaskrifari er ekki sáttur  við þetta orðalag. Hefði fundist  betra að segja: .. frá því  forseti hafnaði því að  undirrita lögin.  Kannski er  Molaskrifari einn um þá  skoðun að ekki sé  rétt að nota sögnina að synja með þeim hætti, sem Ríkissjónvarpið gerði.

  Dagskrá íþróttahúss þjóðarinnar í Efstaleiti höfðaði ekki til Molaskrifara á þriðjudagskvöldið (22.02.2011). Hann horfði því á Lárus Blöndal hæstaréttarlögmann, fulltrúa  stjórnarandstöðunnar í Icesave  saminganefndinni  útskýra málið í  samtali við Ingva Hrafn í ÍNN  stöðinni. Lárusi tókst einstaklega vel að  útskýra þetta  flókna  mál og þær áhættur sem  felast í  hvorum  þeirra tveggja kosta sem   blasa við. Annarsvegar að  samþykkja þann samning sem  fyrir liggur eða  láta málið fara  fyrir dómstóla. Eftir útlistun Lárusar  er ekki hægt að velkjast í vafa um það hvor kosturinn  sé  betri. En  auðvitað eru  þeir til sem munu halda áfram að  berja hausnum við steininn og  kyrja: Við borgum ekki. Við borgum ekki , undir stjórn Morgunblaðsins og  fyrrum forkólfa Sjálfstæðisflokksins. 

 Ragnar Hall, hæstaréttarlögmaður  gerði Icesave málinu  einnig  mjög  góð skil í Kastljósi Ríkissjónvarpsins (22.02.2011). Hann talaði mannamál, þannig að allir gátu  skilið. Takk fyrir það. Sá sem talaði gegn  Icesave  reyndist vera  viðskiptafélagi eins aðaleiganda  gamla Landsbankans, sem ber ábyrgð á Icesave ruglinu. Það var undarlegt val. Ekki undarlegt þótt maðurinn verði glæpinn.

 Það er til marks um vinnubrögð Morgunblaðsins í Icesave  málinu að í dag (24.02.2011) birtir  blaðið leiðréttingu frá  forstjóra  ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. Hann ber af sér sakir. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins  gerði honum upp skoðanir. Laug upp á hann , heitir það á íslensku.  Ný vinnubrögð  á Mogga. Ekki hvarflar að blaðinu að biðja  viðkomandi einstakling afsökunar. Morgunblaðinu er ekkert heilagt í  blindri baráttu gegn  Icesave. Allra síst sannleikurinn.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>