«

»

Molar um málfar og miðla 542

  Þar féllu nokkur él, sagði  veðurfræðingur í  veðurfréttum Ríkissjónvarps.  Molaskrifari man ekki til þess að hafa heyrt þetta orðalag, en það segir  svo sem lítið. Og auðvitað er ekkert  rangt við þetta orðalag. Þarna  hefði   einnig   mátt tala um éljagang. Nokkuð algengt er líka, að sagt sé: Það kastaði éljum, gekk á með éljum. 

   Molaskrifari telur rétt að vekja sérstaka athygli á  grein Karls  Kristjánssonar starfsmannastjóra Alþingis í Fréttablaðinu í dag (28.02.2011) þar sem hann fjallar um  einstæð vinnubrögð Ríkisútvarpsins og misnotkun á  stofnuninni  í þágu níumenninganna svokölluðu: http://www.visir.is/einhlida-og-villandi-umfjollum-ruv/article/2011702289975

     Sagnfræðingarnir, sem fram komu í Silfri Egils (27.02.2011) afgreiddu  Rómarrugl Ólafs Ragnars Grímssonar snyrtilega og kurteislega. Leitt er  hinsvegar að forsetinn skuli vera búinn að  eyðileggja orðatiltækið   söguleg tímamót.  Allt sem Ólafur Ragnar  tekur sér fyrir hendur markar orðið  söguleg tímamót. Því er þetta orðið merkingarlaust með öllu.

  Glæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna verður falið að  rannsaka …las fréttaþulur Ríkisútvarps hikstalaust í hádegisfréttum (27.02.2011). Hér  hefði  tvímælalaust átt að  segja: Glæpadómstól,  eða  glæpadómstóli  Sameinuðu  þjóðanna verður falið….

 Í þættinum Landinn  (27.02.2011) í Ríkissjónvarpinu  voru sýndir  tveir sólstólar, sem komið hafði verið   fyrir á  víðavangi. Fréttamaður  tók  svo til orða,  að einhver  hefði séð sér  leik á borði  og komið  stólunum  þarna  fyrir.  Molaskrifari áttar sig ekki hvaða erindi þetta  orðatiltæki átti í  þessu samhengi.  Að  sjá sér leik á borði er að   nýta sér gott  tækifæri til e-s  eða  grípa tækifærið til að koma  einhverju fram í eiginhagsmunaskyni,   svo  vitnað sé í Merg málsins   eftir    dr. Jón G.  Friðjónsson.  Þessi notkun  orðatiltækisins  var  út í hött. 

Komi  maður of seint, biðst maður afsökunar. Það er almenn kurteisi.  Ríkissjónvarpið biðst ekki afsökunar þegar   sýningu þáttar (Lífverðirnir 27.02.2011) seinkar um  sjö  til átta mínútur vegna þess að útsendingarstjórar kunna ekki nægilega vel á klukku. Það er ókurteisi.

  Sjónvarpið sýndi þátt, sem hét: Hvert  stefnir Ísland?  Hvernig væri að gera þátt, sem héti: Hvert stefnir Ríkisútvarpið?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>