«

»

Molar um málfar og miðla 549

Í skjáauglýsingum Ríkissjónvarpsins  (06.03.2011) voru auglýstir tónleikar Sigrúnar Eðvaldsdóttur og  félögum. Þetta er enn eitt  dæmi um slæleg vinnubrögð  auglýsingadeildar Ríkisútvarpsins.  Þar    virðist þeim hafa farið ört  fækkandi, sem  eru vel að sér í  íslensku.  Skylt er að geta þess að þulur las  setninguna rétt.  Stundum leiðrétta þulir  auglýsingatexta. Nýlega  var  sagt að   endurvinnslustöðvar Sorpu opnuðu á tilteknum tíma. Næst þegar  auglýsingin var lesin leiðrétti þulur þetta og  sagði að endurvinnslustöðvarnar yrðu opnaðar. Plús fyrir það.

  Bærinn lá einnig undir loftárásum var sagt í  sexfréttum Ríkisútvarpsins (06.03.2011). Ekki verður  sagt að þetta sé  vel orðað.

  Frá  23. febrúar  til 6. mars  stóð yfir í Osló heimsmeistaramót í norrænum skíðagreinum. Þetta mót hefur að mestu  farið  framhjá íslenskum íþróttafréttamönnum ,sem  fátt  sjá nema  bolta og aftur bolta, dag eftir  dag. Ef  ekki handbolta, fótbolta eða körfubolta, þá  golfbolta.  Það var mikið af frábæru myndefni að fá  á Holmenkollen ofan við  Ósló. En áhugi  íslenskra fjölmiðla var lítill.

  Í  umræðunum í upphafi Silfurs Egils  voru  þrjár gamlar, rispaður plötur  (Þór Saari, Silja Bára og Eiríkur Bergmann) sem  ekkert nýtt höfðu til málanna að leggja. Fróðlegt var hinsvegar að heyra  sjónarmið Ásgeirs Brynjars  Torfasonar rekstrarhagfræðings,sem starfar í Svíþjóð. og  hafði ekki komið til Íslands  síðan fyrir hrun. Hann var rödd skynseminnar í þessu  annars  heldur innantóma tali. 

 Gott viðtal  Egils  við Uffe Ellemann-Jensen, sem var fréttamaður  hjá danska sjónvarpinu áður en hann fór út í pólitík. Uffe er  reyndur maður og greindur   með  vítt sjónarsvið og  fróðlegt var að heyra hann fjalla um Evrópumálin.  Jafn gott og þetta viðtal var, þá  var ömurlegt að hlusta á  einn af gömlum páfum kommúnismans á  Íslandi, Kjartan Ólafsson, fyrrum Þjóðviljaritstjóra,   reyna að gera lítið úr merku og  vel undirbyggðu  sagnfræðiriti Þórs Whitehead um íslenska kommúnista,  hreyfingu þeirra og tengsl  við  Sovétið. Og Egill lét sér nægja að humma og humma. Merkilegt hvernig þjóðviljaritstjórinn til dæmis  skautaði léttilega framhjá  vináttusamningi Hitlers og  Stalins. Í endurskoðun íslenskra kommúnista á sögunni var sá samningur líklega aldrei gerður.

 Í Reykjavíkurbréfi Moggans um helgina er talað um að hunsa dóm Hæstaréttar um ógildingu  kosninga til Stjórnlagaþings með því að  Alþingi  skipi svokallað Stjórnlagaráð.   Hæstiréttur  kvað ekki upp dóm. Hann úrskurðaði sem  stjórnvald um  lögmæti kosninganna.  Það er ekki mikil lögfræði í þessum skrifum Morgunblaðsins. Sumir héldu að  höfundur Reykjavíkurbréfs væri lögfræðingur. Lögfræðingurinn hefur líklega tekið sér frí um helgina. Nema þá að viljandi sé verið að rangtúlka það sem gerðist. Svona eins og  kommúnistablaðið Þjóðviljinn hafði fyrir sið á árum áður.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>