«

»

Molar um málfar og miðla 646

 

Eitt ofnotaðasta (og misnotaðasta) orðtak  tungunnar er  að vinna hörðum höndum að  einhverju.  Hlálegt dæmi um þetta var í Fréttatímanum (01.07.2011)  þar sem segir um auðkýfinginn Kára Stefánsson, sem á  sögufrægt stórhýsi í vesturbæ  Reykjavíkur,  að hann  vinni nú hörðum höndum að því að  byggja annað glæsihýsi í Kópavogi!!  Molaskrifari  sér ekki auðmanninn fyrir sér í hlutverki múrara eða smiðs.

 

Lesandi  Mola sendi eftirfarandi  ábendingu: ,,Vont er að heyra forstöðumann Amtbókasafnsins á Akureyri segja frá lestrar- og íslenskueflingarátaki barna sl. föstu- eða mánudag í útvarpinu og vísa til barnanna sem nýta sér safnið með því ítrekað að kalla þau „ðaug“.
Það er lámarkskrafa að fólk í svona störfum tali gott mál”. Molaskrifari  þakkar ábendinguna og  tekur undir það sem þar er sagt.
 

 

Ungir læknar í sérnámi  eru ekki að snúa heim í sama mæli og áður (01.007.2011)var sagt í fréttum Stöðvar tvö. Það virðist engin leið fær til  hlífa okkur hlustendum   við er að fárinu.

 

Bæjarhátiðirnar eru hver annarri lík, var sagt í sexfréttum Ríkisútvarps (01.07.2011). Molaskrifari er á því að  segja hefði átt:  Bæjarhátíðirnar eru hver annarri líkar.

 

Samkvæmt veðurlýsingu  Veðurstofu Íslands  í áttafréttum Ríkisútvarpsins hefur verið  skemmtilegt veður í Bolungarvík í morgun (02.07.2011). Þar  vestsuðvestan logn !

 

Engum er allsvarnað. Jafnvel ekki  Ríkissjónvarpinu. Þar virðast menn nú orðnir uppiskroppa í bili að minnsta kosti (vonandi lengur) með dellumyndir, sem hellt hefur   verið  yfir þjóðina á besta tíma á  föstudags- og laugardagskvöldum. Í gærkveldi (01.07.201)   var sýnd evl gerð mynd   eftir  skáldsögu Jane Austen, Emmu og  þar á eftir  kom  fínn sænskur   krimmi, – þrælspennandi.    Í  kvöld er svo ágætismynd á  dagskrá (muni Molaskrifari  rétt)  Good  Morning  Vietnam. Hún fær  þrjár stjörnur  í  kvikmyndahandbók Leonards Maltins. Guð láti gott á vita, eins og  gamla fólkið sagði.

 

Alkunna er hvernig í Útvarpi  Sögu var ( og er kannski enn) blandað  saman auglýsingum og dagskrárefni þannig að mörkin milli  auglýsinga og urðu óljós og stundum  ósýnileg. Þetta kölluðu einhverjir ,,auglýsingahórerí”. Nú hefur  Molaskrifari ekki hlustað á Útvarp  Sögu nokkuð lengi og  veit því ekki hvernig þessu er þar háttað nú um stundir. Hann er í stækkandi hópi sem forðast subbuskapinn, sem þar er á boðstólum.  Í Ríkissjónvarpinu eru mörkin  milli auglýsinga og efnis, sem á árum áður  voru mjög skýr,  nú sem óðast að mást út.  Allt að verða einn hrærigrautur.  Um skeið  hefur verið auglýst   bók frá BYKO um pallasmíði.  Nú er   Ríkissjónvarpið    auglýsa þætti þar sem pallasmiðurinn frá  BYKO leikur aðalhlutverkið og  þættirnir eru gerðir og sýndir, að  manni skilst í samvinnu við BYKO. Þetta er auglýst daglega ásamt pallabókinni.   Það er því eðlilegt að spurt sé: Er BYKO búið að  kaupa  Ríkissjónvarpið ?  Dagskrárstjórar í Efstaleiti hafa  greinilega hvorki vilja né getu  til að hafa  stjórn á  auglýsingadeildinni, sem ásamt íþróttadeilinni virðist ráða öllu sem máli skiptir í  Ríkissjónvarpinu.    

6 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Kærar þakkir fyrir þetta, Hallgerður.

  2. Hallgerður Pétursdóttir skrifar:

    Ég hef svo mikla ánægju af málinu í vanmætti mínum.

    Er málið góða við dauðans dyr
    er dýrðlegi stofninn að fúna
    Það sem menn kölluðu knérunn fyrr
    kalla menn hnérrunn núna …( tvö N ? )

    Íhaldsmaður úr Eyjun í ræðustól á öldinni sem leið.

  3. Eiður skrifar:

    Kærar þakkir, Stefán.

  4. Stefán Friðrik Stefánsson skrifar:

    Sæll Eiður. Þakka góð skrif. Alltaf gaman að lesa hugleiðingar þínar um málfar og fjölmiðla.

  5. Eiður skrifar:

    Þakka þér skrifin, Sveinn. Held ég hafi aldrei áður slegið upp í Maltin ! Sá þessa mynd á sínum tíma, – og skemmtimér alveg þokkalega.Þannig er það allavega í minningunni. Það sem ég kalla ,,delluumyndir“ er auðvitað út frá eigin sérvisku fordómum og smekk. Margar gamlar myndir eru góðar og standa enn fyrir sínu, – með því er ég hreint ekki að hallmæla myndum sem nú eru að koma fyrir augu áhorfenda. Ég tek öllum málefnalegum ábendingum vel, – þó það nú væri !

  6. Sveinn Másson skrifar:

    Sæll Eiður,

    þakka ég þér fyrir afskaplega góða pistla og gagnlega. Vona ég að starfsmenn fjölmiðlanna lesi og noti sér í starfi.

    Ekki hef ég út á margt að setja, og alls ekki innsláttarvillur, sbr. evl gerð mynd. Hins vegar vil ég á það benda, að dellumyndir. sem þú kallar svo og Ríkisútvarpið sýnir hverja helgi, eru eflaust margar sambærilegar að gæðum hjá allmörgum og gamla dellumyndin Good Morning Vietnam.

    Með því er ég ekki að hrósa Ríkisútvarpinu en aðeins því að Molaskrifari virðist geta dæmt hvað teljast til dellumynda og hvað ekki, og þá augljóslega með hjálp Leonards Maltins og aldurs myndanna. Eftir því sem þær eru eldri virðast þær batna í huga Molaskrifara. Sést það berlega á færslunni hér að ofan og ummælum þínum um slappa gamanmynd frá Hollywood þar sem herstörf eru dásömuð út í eitt.

    Hef ég þó ekkert út á ummæli þín um Emmu og sænska krimman að setja. Aðeins að benda þér á þetta atriði. Vona ég og að þú takir því ekki illa.

    Með góðri kveðju,
    Sveinn Másson

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>