Lögreglan er sögð mútuþægin, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (07.07.2011) og átti við lögregluna í Taílandi. Þetta hljómaði ekki rétt í eyrum Molaskrifara. Betra hefði verið að segja: Lögreglan er sögð mútuþæg. Eða: Lögreglan er sökuð um mútuþægni.
Úr mbl.is (06.07.2011): 365 miðlar ehf. eignuðust 47% hlut í Hjálmi, aðaleiganda útgáfufélagsins Birtíngs, í janúar síðastliðinn. Í janúar síðastliðnum ætti þetta að vera.
Stafsetningarorðabækur, – sem aðrar orðabækur, eru þarfaþing. Ef fréttaskrifari DV hefði flett upp í orðabók hefði hann ekki tvisvar sinnum skrifað heiðskýr, – heldur heiðskír.
Fyrrum ráðherra skrifar grein í Morgunblaðið (06.07.2011) þar sem hann talar um sögulegar sættir í deilum Frakka og Þjóðverja og segir: Undirstöður Evrópusamvinnunnar bera merki þessara sögulegu sætta. Molaskrifari er á því að hér hefði átt að segja : … bera merki þessara sögulegu sátta.
Úr mbl.is (06.07.2011): … að hlutfallið á milli lengd fingranna ráðist af kynhormónum í fóstrum. Hér ætti að standa : … hlutfallið milli lengdar fingranna. Villan er reyndar tvítekin í fréttinni.
Kristian Guttesen þakkar málfarspistlana og segir:
Ég sendi þér hér dæmi um málnotkunarvillu hjá Fréttablaðinu, sem að öllu jöfnu er annars vel prófarkalesið. Í orðabókinni segir:
reyta -u KVK
svolitlar eigur (t.d. eignir látins manns)
hirða reytur e-s
rugla saman reytum (reytunum/reytum sínum) taka saman, giftast.
Aftan á Fréttablaðinu í morgun (6. júlí 2011) stendur að fjölskyldur tveggja handboltakappa ætli að „rugla saman reytum þegar keppnistímabilið hefst…“
Molaskrifari þakkar sendinguna. Þetta verður greinilega mjög sérstætt hjónaband !
Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaður gerir alvarlegar athugasemdir við fréttaflutning Ríkisútvarpsins á bloggsíðu sinni og segir: ,,Almennt er ástæða til þess að hafa verulegar áhyggjur af vaxandi óvönduðum fréttaflutningi sem einkennist meira af skoðunum sem fréttamaðurinn vill koma á framfæri en hlutverki hans að miðla upplýsingum og sjónarmiðum.
Hrunið opinberaði þjóðinni að víða í samfélaginu voru brotalamir. Þar má nefna stjórnmálin, viðskiptalífið og embættismenn, en ekki hvað síst bera fjölmiðlarnir mikla ábyrgð. Enn sem komið er ekki að sjá að þeir eða einstakir fréttamenn séu farnir að líta í eigin barm. Ástandið á Ríkisútvarpinu er gleggasta dæmið um það.”
Molaskrifari var að lesa einkar athyglisverða grein eftir Jón Baldvin Hannibalsson. Jón var beðinn að skrifa um bókina Sovét Ísland eftir Þór Whitehead prófessor í frjálshyggjuritið Þjóðmál. Ritstjórinn hafnaði greininni á þeim forsendum að hún væri árás á hægri stefnu og því tímaritinu ekki þóknanleg. Sovét hvað, spyr maður ? Þar mátti ekkert birta,sem ekki var valdhöfum þóknanlegt. Þetta var svolítið Sovét Ísland. Grein Jóns Baldvins má lesa hér:
Skildu eftir svar