«

»

Molar um málfar og miðla 659

Svolítið  þótti Molaskrifara einkennilegt að heyra í fréttum Stöðvar  tvö  talað um að  breikka  ströndina við Vík í Mýrdal.   Var ekki verið að gera eða  byggja varnargarða?  Molaskrifari kann heldur ekki að meta,  þegar sagt er í   Ríkisútvarpinu  að menn hafi  róið lífróður að því að koma þjóðarskútunni í höfn (14.07.2011). Betra hefði  verið að tala um að róa  lífróður til að koma þjóðarskútunni í höfn.  Það var heldur ekki gott orðalag  þegar  sagt var að  tilkynnt hefði verið um að ,   nægt hefði  að segja  að  tilkynnt hefði verið að …

Ekkert um.

  Í áttafréttum Ríkisútvarpsins í morgun  (16.07.2011) var sagt um ferðir Herjólfs: Allar ferðir dagsins seinka því um tvær klukkustundir . Ambagan var endurtekin í níufréttum. Hlustar enginn yfirmaður eða fréttamaður á fréttirnar? Dettur þeim ekki í hug að hringja og leiðrétta? Ferðunum seinkar. Þær seinka ekki.  Endemis rugl !Kannski heyra þeir þetta ekki. Það er líklegast.  Það hefur margsýnt sig, að við Ríkisútvarpið starfa nokkrir  fréttamenn, sem ekki ætti að hleypa að hljóðnema  með handrit, nema einhver  með  svolítinn snefil af máltilfinningu  sé búinn að lesa  handritið og leiðrétta.  Hvar er  málfarsráðunautur?   – Ekki voru neinar fréttir  af Herjólfi í tíufréttum. Ambagan gekk hinsvegar aftur í hádegisfréttum !

 

 Það er sérstakt afrek  hjá dagskrárstjórum Ríkissjónvarpsins að grafa upp  ófyndnar dellumyndir  eins og Öfund (Envy), sem   okkur var sýnd á  besta tíma á föstudagskvöldið. (15.07.2011). Internet Movie Database gefur myndinni 4.6 af 10. Falleinkunn.

Grillþáttur í Ríkissjónvarpi þar sem  þrír kokkar  framreiddu kræsingar (14.07.2011) var ágætur. Flottir  réttir, en kannski dálítið flóknir. Gott væri að hafa eitthvað einfaldara  í bland. Að ósekju  hefði málfar mátt vera betra. Það var  óþarfi að tala um lamba prime, crushed ice, lemon gras,og  nice og fluffy.  Það er hægt að segja þetta á  íslensku.  Ólíkt var þetta samt  betra   en það sem boðið er upp á af þessu tagi á Stöð  tvö og ÍNN. En er það ekki   undarleg  tilviljun að  samtímis því sem byrjað er að sýna þessa  þætti kemur út  matreiðslubók með sama nafni og þættirnir, eftir þessa sömu kokka?   Enn er blandað saman auglýsingum og þáttagerð í Ríkissjónvarpinu.  Kokkarnir og útgefandi bókarinnar hljóta  að borga drjúgan skilding fyrir þættina.  

Á nafnlistanum sem  birtur er á skjánum í lok hvers  fréttatíma Ríkissjónvarpsins ætti nafn vaktstjóra, sem ber ábyrgð á fréttatímanum   saman að vera   efst,  en  nafn fréttastjórans neðst.

Í veðurfréttum frá Veðurstofu Íslands (15.07.2011) var sagt  að útlit væri fyrir þurru og björtu veðri. Segja  má  að  Veðurstofan hafi spáð þurru og björtu veðri og útlit  hafi verið fyrir þurrt og bjart veður. Þannig hefði Molaskrifari orðað þetta.

Pönduhúnn kom við sögu í fréttum Stöðvar tvö (16.07.2011). Sagt var að honum yrði hjúkrað til heilsu. Það var ágætlega að orði komist.

Þótt  hér sé oft agnúast út í Ríkisútvarpið skal því haldið til haga á að Rás eitt er oft  frábært  efni,  bæði  nýtt og frá  liðnum árum. Gildir það bæði um tónlist og  talað mál. Kannski eru það ellimörk á Molaskrifara, að  margt hið besta ,sem hann heyrir á Rás eitt eru endurteknir þættir úr gullkistu Ríkisútvarpsins, sem nú má ekki lengur  heita  Ríkisútvarp. Ef Molaskrifari væri spurður hvort hann hefði  unnið hjá   RÚV væri svarið nei. Hann vann hinsvegar hjá Ríkisútvarpinu frá því í byrjun árs 1967 til  haustsins 1978 er hann tók sæti á Alþingi.

Er að …  er að… Þetta er allt   að ganga eins og það á að ganga , sagði fréttamaður  Ríkisútvarps í  sexfréttum (15.07.2011). Hvernig hefði verið að segja: Þetta gengur  eins og  í sögu, eins og í lygasögu, þetta gengur ljómandi vel,  gengur eins og best verður á kosið.  Bara ekki segja  þetta er að ganga !

Hrós fær umsjónarmaður Íslands í dag á Stöð tvö fyrir að tala um rjómablíðu í Reykjavík (15.07.2011). Það er  uppörvandi að heyra notað annað orð um  góðviðri en  bongóblíða, sem  Molaskrifari er hreint ekki hrifinn af og virðist vera eina orðið, sem allt of margir  fréttamenn kunna  um veðurblíðu.

3 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Helgi skrifar:

    Enda eru þeir búnir að leiðrétta hana….

  2. Eiður skrifar:

    Það er misskilningur, að ég fari mýkri höndum um DV en aðra fjölmiðla. Sé raunar ekkert athugavert við fyrrisögninaa, sem þú fárast yfir.

  3. Helgi Pálsson skrifar:

    Sæll.

    Mér hefur þótt þú fara frekar mjúkum höndum um DV menn í sambandi við málfar eða öllu heldur ambögur. Er þó af nógu að taka, að mínu mati.
    T.d. þessi fyrri sögn þar sem blaðamaður missir algerlega vald á sjálfum sér og þrátt fyrir marg endurtekinn lestur er maður ekki alveg viss um hver meiningin er.
    Bestu kveðjur
    Helgi

    http://www.dv.is/frettir/2011/7/17/samfylkingin-daelir-fe-i-landsbyggdarkjordaemin/

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>