«

»

Molar um málfar og miðla 757

Molalesendur er beðnir  velvirðingar á því að ólag hefur verið á birtingu Mola um málfar og miðla  á  DV –Blogginu undanfarna daga.

.

Það gefur aldrei  góða  raun að fikta við að lagfæra það sem er í góðu lagi.  Vefur  Ríkisútvarpsins var í ágætu lagi. Breytingar sem þar hafa verið gerðar  eru  ekki allar   til batnaðar.  Fréttir eru til dæmis ekki eins aðgengilegar og áður var.

 

Þorkell sendi eftirfarandi úr mbl.is (29.10.2011); Rjúpnaskytturnar tvær sem leitað var að við Vikrarvatn í gærkvöld fundust í kringum miðnætti. Mennirnir voru slæptir og þreyttir en treystu sér þó til að ganga með björgunarmönnunum í bílana ofan við Hreðarvatn eftir að hafa fengið smá hressingu.,,,, en (r)júpnaskytturnar treystu sér ekki til að fara eftir tækinu til byggða auk þess sem orka var ekki til staða fyrir meiri göngu. Þorkell bætir  svo við:  ,,Tja, ég veit ekki hvað ég á að segja. Vikrarvatn, Hreðarvatn, til staða –  Það eru mun fleiri sem lesa mbl.is en blaðið sjálft, þannig að smitið dreifir sér meira heldur en blaðið sjálft getur gert, því það lesa það fáir nú orðið”.  Molaskrifari segir:Hér er  farið rangt með  tvö örnefni. Vötnin heita Vikravatn og Hreðavatn. Ef notuð er leitarvélin Google sést  að  dreifing á villunum er  þegar hafin og gengur greiðlega. Auka  r  er annars að vera  býsna  algengt. Í mbl.is  er  s sagt í fyrirsögn: Hálka á heiðarvegum. Ætti að mati Molaskrifara að vera: Hálka á heiðavegum.

 

 

Í fréttum  Stöðvar tvö (27.10.2011) fengu  fimmtíu  mótmælendur fyrir utan  Hörpu næstum  jafnlanga umfjöllun og   fjölmenn alþjóðleg ráðstefna sem haldin var inni í húsinu.  Einkennilegt fréttamat.  fréttamenn Stöðvar tvö mættu einnig hafa í huga að á  varðskipunum okkar eru ekki skipstjórar heldur  skipherrar. Það er  fast í málinu og Stöð tvö á ekkert með að breyta því.  Fámennu mótmælin við  Hörpu fengu fimm dálka flennimynd yfir þriðjung úr  síðu Morgunblaðsins (28.10.2011). Moggamenn bregðast ekki frekar en fyrri daginn.

 

Hreiðar  sendi eftirfarandi (27.10.2011): ,,Þegar maður les fréttir þá blasir stundum við hve lítið frétta- og blaðamenn leggja á sig til að afla sér þekkingar um þau málefni eða málefnasvið sem þeir skrifa um.  Eftirfarandi frétt af www.dv.is er merki um þetta:
,,Dómur var kveðinn upp í Black Pistons-málinu svokallaða í dag og voru sakborningarnir Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, Davíð Freyr Rúnarsson og Brynjar Logi Barkarson sakfelldir. Fjölskipaður dómur Héraðsdóms Reykjavíkur kvað upp úrskurðinn.“
Þarna er dómurinn ýmist kallaður dómur eða úrskurður.  Niðurstaða héraðsdóms í sakamáli er alltaf í formi dóms en aldrei í formi úrskurðar.”  Molaskrifari þakkar sendinguna.

 

Hjá  Ríkisútvarpinu hafa menn  mikið dálæti á skammstöfunum. Í morgunþætti  Rásar tvö var fjallað um herferð  til að laða ferðamenn til  landsins. Þar var  Háskóli Íslands ævinlega kallaður HÍ. Er of erfitt að segja  Háskóli Íslands?  Yfirmenn  Ríkisútvarpsins  hafa   bannfært  heiti stofnunarinnar sem  nú heitir í þeirra munni bara RÚV, ekki Ríkisútvarpið, samanber  RÚV-konuna sem  segir   svo tilgerðarlega við okkur   tvisvar, þrisvar á  sömu mínútunni  Hér , — á  RÚV þegar dagskrá  er kynnt á kvöldin.  búinn.  Þeir sem  rætt  er við eiga ekki að láta bjóða sér svona ókurteisi.

 

Í hverjum fréttatímanum á fætur öðrum (28.10.2011) hefur  hlustendum  að undanförnu verið  sagt frá    handatöku manna  í grennd við  Selfoss. Mennirnir  eru  grunaðair um að hafa haft kókaín í fórum sínum  (ætlað kókaín, eins og   fréttastofan segir). Reynist efnið  sem hald var lagt á vera  kókaín er okkur  sagt að   það sé  stærsta mál af því tagi  sem upp hafi  komið á Selfossi. Viðmiðunin  við Selfoss segir hlustendum nákvæmlega ekki neitt í þessu tilviki. Hér  ætti   auðvitað að miða  við  það sem  gerst hefur í  svona málum á landsvísu.

 

 

2 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Ekki stemmir það núivið gamla pésann minn.

  2. Sverrir skrifar:

    Vefur Ríkisútvarpsins er stórum viðmótsþýðari fyrir Makkann minn en sá fyrri. Gamli vefurinn þoldi ekki nýrri útgáfur af Windows stýrikerfum heldur þegar spila skyldi hljóðskrár. Ofmælt er að sá gamli hafi verið í lagi, hvað þá ágætu lagi!

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>