«

»

Draugagangur á vef Ríkisútvarpsins?

Í dag (25.11.2011) var um skeið frétt á vef Ríkisútvarpsins undir fyrirsögninni: ,,Byggja í kapp við leyfissviptingu”. Efni fréttarinnar var að í áliti Skipulagsstofnunar ríkisins segir að leyfið sem veitt var fyrir endurbyggingu Þorláksbúðar í Skálholti hvíli á deiliskipulagi sem ekki sé í gildi. Síðan er haft eftir skipulagsstjóra, Stefáni Thors: ,,… en á meðan greinilega verið að flýta framkvæmdum þannig að þeim verði lokið þegar niðurstaða úrskurðarnefndar liggur fyrir.”
Svo virðist sem þessi frétt hafi verið fjarlægð af vef Ríkisútvarpsins og skemmdarverkin í Skálholti voru ekki nefnd á nafn í fréttum klukkan 1800 og ekki í fréttum Ríkissjónvarps klukkutíma síðar. Molaskrifari hefur leitað með logandi ljósi á vef Ríkisútvarpsins og þar er fréttina ekki að finna. Kannski er hann klaufi að leita.
Nema einhver draugagangur sé í Efstaleiti. Var fréttin fjarlægð? Hversvegna? Var hún ekki rétt? —Mér hefur nú verið bent á að  fréttina sé að finna á vef Ríkisútvarpsins , en hún er eiginlega vandlega falin því það voru fleiri en ég sem ekki fundu hana:http://www.ruv.is/frett/byggja-i-kapp-vid-leyfissviptingu

4 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Eiður skrifar:

    Fleiri leituðu og fundu ekki, en takk fyrir upplýsingarnar. Eftir breytingar er vefur Ríkisútvarpsins ekki eins notendavænn og áður og kemur þar margt til.

  2. Brynjólfur Þór Guðmundsson skrifar:

    Ég hugsa að vandinn sé ekki flóknari en svo að þér hafi sést yfir fréttina. Alla vega sá ég hana strax á undirsíðu innlendra frétta þegar ég leit þar inn eftir að hafa lesið skrif þín. Undir fyrirsögn má svo sjá tvær tímasetningar, annars vegar um hvenær fréttin var sett á vefinn (12:16 í gær) og hvenær henni var síðast breytt eða átt við hana (13:02 í gær).

    http://www.ruv.is/frett/byggja-i-kapp-vid-leyfissviptingu

  3. Eiður skrifar:

    Hið undarlegasta mál.

  4. Sæmundur Bjarnason skrifar:

    Gúgli (google.com) fann þessa grein strax, en mér sýnist það rétt að hún hafi horfið af RUV-vefnum. Kannski eru bara verið að breyta henni eða lagfæra.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>