Það verður ekki af Framsóknarbloggurum skafið , að þeir hafa skemmtilegan húmor, sumir hverjir að minnsta kosti.
Árum saman var gert grín að því að Framsóknarflokkurinn væri opinn í báða enda. Framsóknarþingmaðurinn Helga Sigrún Harðardóttir er með bloggsíðu undir enskri fyrirsögn: „Those are my principles. If you don´t like them, I have others!“ Þetta mun vera tilvitnun í Groucho Marx. Á íslensku þýðir þetta svona frjálslega þýtt, – að vera opinn í báða enda.
Annar Framsóknarbloggari,sem vill verða þingmaður, telur mörgum útlendingum það til tekna að þeir séu Framsóknarmenn. Þannig er Barack Obama Framsóknarmaður og sama máli gildir um Olli Rehn. stækkunarstjóra ESB. Þetta er þeim mun fyndnara þar sem Framsóknarflokkurinn er svo séríslenskt fyrirbæri að hann á sér engar hliðstæður í öðrum löndum. John F. Kennedy var reyndar líka sagður Framsóknarmaður á sinni tíð. Líklega er þetta þetta sérstök tegund af barnalegri vanmetakennd , að nudda sér utan í frægt fólk úti í heimi.
Það er hinsvegar ekki víst að þeim Obama og Olli Rehn þyki fyndið að vera kallaðir Framsóknarmenn á Íslandi, ef einhver skýrði málið og flokkinn fyrir þeim, en það er svo aftur önnur saga!
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
18/02/2009 at 17:28 (UTC 0)
Mikið rétt. Sá sem veit ekki hvert hann er að fara, hann getur ekki villst.
Flosi Kristjánsson skrifar:
18/02/2009 at 17:03 (UTC 0)
Á hliðstæðum nótum og tilvitnunin í Marx: „Ef þú veist ekki hvert þú ert að fara err óvíst að þú komist þangað!“ (Yogi Berra, hafnarboltaþjálfari) Kannski ekki minni Framsóknarmennska en hvað annað